Þrír leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld. Topplið ÍBV heldur sínu striki en liðið sigraði Þór 4-1, Sævar Þór Gíslason tryggði Selfyssingum útisigur á Leikni með tveimur mörkum seint í leiknum og Njarðvík og Víkingur Ólafsvík gerðu 1-1 jafntefli. Kíkjum á nánari umfjöllun um leiki kvöldsins.
Eyjamenn halda áfram á sama skriðinu
ÍBV 4 - 1 Þór
0-1 Ibra Jagne
1-1 Atli Heimisson
2-1 Bjarni Hólm Aðalsteinsson (Víti)
3-1 Andri Ólafsson
4-1 Atli Heimisson
Eyjamenn voru betri til að byrja með og sóttu fyrstu mínúturnar en mark Þórsara kom úr þeirra fyrstu sókn og var ekkert annað en köld vatnsgusa í andlit leikmanna ÍBV. Hreinn Hringsson fékk stungusendingu upp vinstra megin í vítateig ÍBV, sendi fyrir markið en boltinn hafði viðkomu í Matt Garner, varnarmanni ÍBV. Af honum sveif boltinn í boga, yfir Albert Sævarsson markvörð ÍBV og út við fjærstöng náði Ibra Jagne að ýta boltanum yfir línuna af stuttu færi. Markið kom á 8. mínútu.
Eftir markið voru Eyjamenn í nokkrar mínútur að ná áttum en náðu fljótlega tökum á leiknum að nýju. Fátt gerðist hins vegar þar til á 27. mínútu að Albert Sævarsson hreinsaði frá marki ÍBV, langt fram á völlinn þar sem markaskorarinn Atli Heimisson stakk varnarmenn Þórsara af og lagði boltann snyrtilega í netið. Staðan því 1:1 og Eyjamenn önduðu léttar.
Eftir þetta tóku Eyjamenn öll völd á vellinum og Þórarinn Ingi Valdimarsson átti hættulegan skalla rétt yfir á 28. mínútu. Tveimur mínútum síðar var Andri Ólafsson í dauðafæri, einn og óvaldaður á markteig en á einhvern óskiljanlegan hátt skaut hann yfir. En í uppbótartíma fyrri hálfleiks sóttu Eyjamenn enn á ný, boltinn barst inn á vítateig þar sem Atli átti í höggi við einn varnarmanna gestanna en þeim viðskiptum lauk með því að Atli féll við og vítaspyrna dæmd. Líklega réttur dómur en erfitt að meta það úr blaðamannastúkunni.
Bjarni Hólm Aðalsteinsson, fyrirliði ÍBV skoraði svo örugglega úr vítaspyrnunni og Eyjamenn því 2:1 yfir í hálfleik, sem telst sanngjarnt miðað við gang leiksins.
Síðari hálfleikur var ögn rólegri en sá fyrri. Eyjamenn lögðu alla áherslu á að fá ekki á sig mark en beittu hættulegum skyndisóknum fram völlinn sem oftar en ekki öllu miklum usla.
Andri Ólafsson skoraði hins vegar eftir þunga sókn Eyjamanna þar sem Andrew Mwesigwa lagði boltann fyrir markið af harðfylgi og Andri skallaði inn af stuttu færi á 62. mínútu. Síðasta orðið átti svo markahrókurinn Atli Heimisson sem skoraði eftir laglega skyndisókn Eyjamanna og frábæra sendingu Egils Jóhannssonar og lokatölur því 4:1 fyrir ÍBV.
Ummæli eftir leik (Frá Eyjafréttum):
Atli Heimisson ÍBV:
,,Þetta var orðið nokkuð öruggt eftir að við komumst í 3:1 en við spiluðum samt ekkert vel í þessum leik og náðum því miður ekki að sýna áhorfendum okkar bestu hliðar. Þeir komu okkur svolítið á óvart með að skora fyrst markið enda höfðum við sótt stíft á þá frá fyrstu mínútu og þeir fengu svo eina skyndisókn og skora. En við sýndum karakter með að koma til baka og við fengum þrjú stig í kvöld og það skiptir öllu máli.“
Gaman fyrir þig að skora aftur eftir smá markaþurrð í síðustu leikjum?
„Já ég neita því ekki, ég er búinn að vera svolítið óheppninn fyrir framan markið í síðustu leikjum. En það var gott að skora tvö og leggja upp eitt þannig að vonandi heldur þetta bara áfram svona,“ sagði Atli hress í leikslok.
Fótbolti.net, Vestmannaeyjum - Júlíus G. Ingason.
Sævar Þór sá um Leiknismenn
Leiknir R. 1 - 2 Selfoss
0-1 Jakob Spangsberg ('4)
1-1 Sævar Þór Gíslason ('70)
1-2 Sævar Þór Gíslason ('79)
Sævar Þór Gíslason var hetja Selfyssinga sem sóttu þrjú stig í Breiðholtið. Leiknismenn höfðu forystuna stærstan hluta leiksins en þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka þá tók Sævar til sinna ráða og skoraði tvívegis. Sævar hafði fyrir leikinn ekki náð að finna netmöskvana í 1. deildinni síðan hann skoraði tvö gegn Haukum í 5. umferð þann 6. júní en hann var í markaskónum í þessum leik.
Leiknismenn fengu svo sannarlega færin til að komast tveimur mörkum yfir. Liðinu hefur gengið ansi erfiðlega að nýta þau færi sem það hefur skapað í síðustu leikjum, ógnar mjög með sóknarleik sínum en þegar kemur að því að reka smiðshöggið þá virðist eitthvað klikka.
Það var vel mætt á Leiknisvöllinn og heimamenn fengu sannarlega óskabyrjun þegar Jakob Spangsberg skoraði á fjórðu mínútu. Hann fékk sendingu frá Vigfúsi Arnari Jósepssyni, var vinstra megin í teignum og í prýðisstöðu til að renna boltanum fyrir. En í stað þess tók hann þá ákvörðun að skjóta, Jóhann Sigurðsson markvörður var í boltanum en kom ekki vörnum við og Leiknismenn komnir með forystuna.
Selfyssingum var nokkuð brugðið við að lenda undir og flæðið í spilamennsku þeirra var lítið. Leiknismenn með meiri tök á upphafskafla leiksins. Eftir hálftíma leik fékk Agnar Bragi Magnússon sannkallað dauðafæri til að jafna en Valur Gunnarsson, markvörður Leiknis, náði á ótrúlegan hátt að verja skalla Agnars á markteignum. Staðan 1-0 þegar Valgeir Valgeirsson dómari leiksins flautaði til hálfleiks.
Heimamenn komu ákveðnari til leiks í byrjun seinni hálfleiks og voru virkilega hættulegir. Steinarr Guðmundsson átti hættulegt skot sem fór naumlega yfir markið á 55. mínútu. Stuttu seinna náðu Selfyssingar að bjarga tvívegis á marklínu í sömu sókninni. Aron Fuego Daníelsson fékk dauðafæri, var búinn að leika á markvörðinn og ætlaði að renna boltanum í markið. Skotið var hinsvegar of laust og varnarmaður Selfyssinga náði að renna sér fyrir boltann. Þá barst hann til Jakobs Spangsberg sem skaut að marki en aftur náði varnarmaður Selfyssinga að bjarga á línu. Ævintýraleg björgun.
Aron Fuego fékk annað dauðafæri í leiknum en virtist ekki alveg með á nótunum upp við markið. Leiknismönnum var refsað fyrir að nýta ekki þau dauðafæri sem þeir fengu. Á 70. mínútu áttu Selfyssingar aukaspyrnu á hættulegum stað en Valur í marki Leiknis náði að verja með tilþrifum. Selfyssingar voru þó fyrri til að ná til boltans og eftir klafs í teignum barst hann fyrir fætur Sævars sem lét ekki bjóða sér það tvisvar og skoraði. Sævar hafði lítið sést fram að markinu en þetta mark náði heldur betur að kveikja í honum.
Sævar fékk tvö virkilega góð færi skömmu eftir markið, fyrst var hann ekki í jafnvægi og skaut framhjá en svo náði Valur að verja vel. En á 79. mínútu þá náði Sævar að skora sigurmarkið og það var sérlega glæsilegt. Boltinn barst til hans fyrir utan teig og hann náði hreint frábæru skoti sem söng í netinu. Gestirnir fögnuðu vel og innilega enda var þetta ekki í spilunum tíu mínútum áður.
Leiknismönnum tókst ekki að jafna en liðinu gekk erfiðlega að skapa sér færi undir lokin og of mikið óðagot var á mönnum. Jakob Spangsberg fékk besta færið til að skora hann skallaði yfir. Selfyssingar unnu 2-1 í virkilega skemmtilegum leik á Leiknisvelli. Selfyssingar hafa oft átt betri leik í sumar og geta þakkað Sævari fyrir stigin þrjú. Á lokakafla leiksins sýndu þeir þó hvers þeir eru megnugir og frískir varamenn þeirra lífguðu mikið upp á spilamennsku þeirra. Framlag varamanna Leiknis var hinsvegar minna.
Selfyssingar eru vel settir í öðru sætinu með 28 stig, liðið hefur fimm stiga forskot á Stjörnuna sem á leik inni gegn KS/Leiftri á morgun. Leiknismenn eru hinsvegar á sömu slóðum, sitja í tíunda sætinu og eru fimm stigum frá fallsæti.
Fótbolti.net, Breiðholti - Sigurjón Michael Kleitz.
Jafntefli í rokleik á Njarðvíkurvelli
Njarðvík 1 - 1 Víkingur Ólafsvík
1-0 Rafn Markús Vilbergsson ('16)
1-1 Miroslav Pilipovic ('58)
Njarðvíkingar fengu Víking Ólafsvík í heimsókn í kvöld. Njarðvíkingar sem eiga á brattann að sækja í neðsta sæti deildarinnar skiptu um þjálfara daginn fyrir leik er Helga Arnarssyni var sagt upp störfum og Marko Tanasic var ráðinn í hans stað. Njarðvíkingar vermdu botnsætið fyrir leikinn með 6 stig en Víkingar frá Ólafsvík voru í því sjöunda með 16 stig.
Njarðvíkingar fengu fyrsta færi leiksins eftir mikið klafs í vítateig gestanna á 4.mínutu en skot Rafns Vilbergssonar fór beint í fangið á markverði Víkinga Einari Hjörleifssyni.
Gestirnir fengu svo fyrsta færi sitt eftir að Gestur hafði komið í veg fyrir fyrirgjöf Eyþórs Guðnasonar og í horn. Hornspyrnan rataði á kollinn á Alfreð Jóhannessyni en skalli hans yfir markið.
Það var svo á 16. mínútu sem Njarðvíkingar komust yfir. Há sending barst af vinstri kanti á fjærstöng, einhver misskilningur var á milli varnarmanna gestanna og Aron Smárason skallaði boltann út í teiginn á Rafn Markús Vilbergsson sem tók boltann viðstöðulaust í nær hornið.
Víkingar fengu svo dauðafæri á 24 mínútu þegar Eyþór Guðnason geystist upp hægri kantinn, komst að endamörkum og sendi boltann inn í markteig en Jón Páll Pétursson fór illa með gott færi og á einhvern óskiljanlegan hátt skaut hann framhjá.
Víkingar fengu þrjár hornspyrnur það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og réðu Njarðvíkingar illa við Alfreð Jóhannesson sem hirti alla skallaboltanna í teig heimamanna. Alfreð komst næst því að jafna leikinn á 41 mínútu með föstum skalla en Ingvar Jónsson gerði vel í að slá boltann yfir markslánna.
Síðari hálfleikur var ekki nema 10 mínutna gamall þegar Víkingar jöfnuðu leikinn með frábæru marki. Víkingar komust upp vinstra megin en Njarðvíkingar hreinsuðu í horn. Miroslav Pilipovic fékk lága sendingu vinstra megin fyrir utan teig, skaut viðstöðulausu skoti efst í fjærhornið og jafnaði leikinn. Óverjandi fyrir Ingvar Jónsson í marki Njarðvíkur. Stórglæsilegt mark hjá Miroslav.
Njarðvíkingar sóttu í sig veðrið það sem eftir lifði leiks, Víkingar féllu aftarlega á völlinn og við það jókst sóknarþungi Njarðvíkinga. Á 72. mínútu var mark dæmt af Njarðvíkingum er Árni Þór Ármannsson skoraði en Árni var réttilega dæmdur rangstæður eftir klafs í teig gestanna.
Kristinn Björnsson átti tvær hættulegar aukaspyrnur að marki Víkinga en fyrri fór rétt yfir markið og Einar Hjörleifsson varði síðari með miklum tilþrifum í horn.
Vikingar hefðu getað tekið öll 3 stigin með sér heim á 89. mínútu er varnarmaður Njarðvíkinga Vignir Benediktsson féll um sjálfan sig og varamaðurinn Hermann Geir Þórsson komst einn á móti Ingvari Jónssyni markmanni Njarðvíkinga en Ingvar gerði vel og hirti boltann af Hermanni. Sannkallað dauðafæri hjá Hermanni sem á sjálfsagt eftir að fara að sofa með þetta færi yfir hausnum á sér næstu næturnar.
1–1 mega teljast sanngjörn úrslit, leikurinn einkenndist af hörku þar sem mikið var í húfi fyrir bæði lið og ekki gerði rokið leikmönnum léttara fyrir til að spila fallegan fótbolta.
Víkingur Ólafsvík fór upp úr 7 sæti í það 6 með 17 stig en Njarðvíkingar sitja enn á botninum með 7 stig ásamt KS/Leiftri.
Ummæli eftir leik:
Eyþór Guðnason: leikmaður Víkings Ólafsvíkur spilaði á móti sínu gamla liði Njarðvík í kvöld. Aðspurður um úrslit leiksins svaraði Eyþór;
,,Mér fannst þetta bara vera sanngjörn úrslit, það hefði verið ósanngjarnt að skora þarna í endann en það hefði verið sæt úrslit fyrir okkur engu að síður. Njarðvíkingar mættu vel stemmdir til leiks og skoruðu snemma og réðum við illa við þá en eftir markið var meira jafnræði með liðunum. Skoruðum flott mark í síðari hálfleik og í kjölfarið pressuðu Njarðvíkingar á okkur en jafntefli voru sanngjörn úrslit.”
Gestirnir féllu vel tilbaka eftir jöfnunarmarkið og gáfu Njarðvíkingum fullmikið svæði á eigin vallarhelming.
,,Það gerðist sjálfkraft að við duttum niður, við reyndum að halda marki, frekar en að sækja meira. 1 – 1 á útivelli, 1 stig eru fín úrslit fyrir okkur, næsti leikur er heimaleikur gegn KS/Leiftri og leggst hann bara mjög vel í mig, við ætlum okkur 3 stig í þeim leik sem færir okkur lengra frá fallbaráttunni, það er það sem við erum að sækjast eftir."
Fyrirliði Njarðvíkinga Guðni Erlendsson var ekki sáttur við þeirra hlutskipti miðað við frammistöðu sinna manna eftir leikinn.
,,Ég er ekki sáttur, við stefndum á að fá 3 stig og lögðum upp með það og ætluðum að pressa vel á þá og það gekk mjög vel nánast allan leikinn, við vorum að skapa okkur jafnt og þétt yfir allan leikinn færi en því miður tókst okkur bara að nýta eitt þeirra og svo einbeitingarleysi í einni hornspyrnunni þar sem þeir jafna leikinn. En svona heilt yfir þá fannst mér við sterkari aðilinn og stefndum að 3 stigum en náðum bara einu.”
Njarðvíkingar skiptu um þjálfara daginn fyrir leik, hvaða áhrif það hafði á mannskapinn? ,,Menn voru bara vel gíraðir í leikinn og hann náði að hressa vel uppá andann í liðinu og menn komu vel stemmdir í þennan leik þannig að það var bara mjög jákvætt."
Fótbolti.net, Reykjanesbæ - Gísli Þór Þórarinsson.


