Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 25. júlí 2008 00:54
Arnar Daði Arnarsson
Fjalar Þorgeirs.: Þetta kryddar tímabilið okkar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjalar Þorgeirsson var að vonum ánægður með 1-0 sigur í kvöld á Haukum í Hafnarfirði. Fjalar hélt sínum mönnum inn í leiknum í fyrri hálfleik og var líklega besti maður Fylkis ef ekki leiksins í kvöld.

,,Markmiðið var að vinna leikinn, hvort það hefði verið 5-0 eða í vítaspyrnukeppni skipti engu máli, við erum í pottinum á morgun og við erum ánægðir með það," sagði Fjalar Þorgeirsson eftir leikinn í kvöld.

,,Ég er ánægður með seinni hálfleikinn og framlenginguna. Við vorum mjög óöruggir í fyrri hálfleik, þó það sé lélegt að nota svona afsökun þá áttum við í erfiðleikum að ná valdi á boltanum á gervigrasinu og vorum að spila of hægt og fengum á okkur alltof margar skyndisóknir en sem betur fer lukkaðist það þannig að við fengum ekki á okkur mark, þannig við vorum ennþá inn í leiknum og vorum betra liðið í seinni hálfleik og framlengingunni. En þeir hefðu hugsanlega getað verið komnir yfir í fyrri hálfleik.,"

Fjalar hélt sínum mönnum inni í leiknum í fyrri hálfleik, Fjalar leið greinilega vel á gervigrasinu umtalaða

,,Maður verður bara að taka því hvar maður á að spila, við æfðum á gervigrasi í gær og undirbjuggum okkur fyrir það. Það á ekki að skipta neinu máli hvar maður spilar," sagði Fjalar.

Komu Haukarnir Fjalari eitthvað á óvart í kvöld ?

,,Ég veit það ekki, ég hef ekki séð þá mikið spila en ég vissi að þeir væru mjög öflugir á heimavelli og einungis búnir að tapa einum leik hér í sumar fyrir þennan leik og við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir það. Svo vissum við að þeir væru með hættulegan mann frammi sem var búinn að skora mikið af mörkum, svo eru þeir með menn sem eru búnir að spila í efstu deild, bæði Tóta (Þórhall Dan) og Goran Lukic þannig þeir eru með hörkulið,"

Nú eru auk Fylkis, KR, Breiðablik og Fjölnir eftir í pottinum, eru eitthverjir óskamótherjar sem Fjalar vill fá ?

,,Verðum við ekki að segja Fjölnir til að hefna ófaranna frá í fyrra annars á það ekki að skipta neinu máli. Það eiga að vera 25 % líkur að vinna bikarinn núna þannig okkur hlakkar bara til, þetta kryddar tímabilið okkar ,"

Fylkismenn höfðu tapað fimm leikjum í röð í deild áður en þeir mættu FH í þar síðustu umferð í Kaplakrika og fóru með sigur að hólmi og nú sigruðu þeir Hauka einnig í Hafnarfirði, Fylkismönnum líkar greinilega vel í Firðinum,

,,Það er ljóst, við höfum ekki tapað í Hafnarfirði í ár spurning hvort við spilum ekki bara við ÍH, það er allavegana ekkert Hafnarfjarðarlið eftir í pottinum, en það hefði verið best að fá bara ÍH ," sagði Fjalar á léttu nótunum í lokin.
Slapp
banner