David Sommeil vaknaður úr dái
David Sommeil fyrrverandi miðvörður Manchester City er vaknaður úr dái sem hann lenti í fyrir tveimur vikum síðar er hann fékk hjartaáfall á æfingasvæði núverandi félags síns, Valenciennes í Frakklandi.
Sommeil sem er 34 ára gamall fékk aftur meðvitund í gær og eftir að hafa gengist undir próf lækna kom í ljós að engin merki eru um heilaskaða þó hann geti ekki talað.
,,Hann vaknaði í læknisfræðilegum skilningi en er ekki enn farinn að tjá sig," sagði Marc Chasselet læknir liðsins við La Provence dagblaðið.
,,Augu hans eru opin, hann er að líta í kringum sig, en ekki að tala. Hann brosir öðru hvoru, sem gæti verið merki um byrjun þess að hann tjái sig."
Blaðið sagði einnig að engin merki væru um að hjarta hans hafi skaðast til langs tíma við áfallið.