Viðar Örn Kjartansson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson leikmenn U19 ára landsliðsins og Selfyssinga. Með þeim á myndinni er Henning Jónasson.
U19 ára landslið karla tapaði 2-0 gegn Norður-Írum í vináttulandsleik sem fram fór ytra í kvöld.
Norður-Írar komust yfir undir lok fyrri hálfleiks og þeir bættu við öðru marki í byrjun síðari hálfleiks.
Liðin mætast síðan aftur á miðvikudaginn í öðrum vináttuleik.
Byrjunarliðið(4-5-1):
Markvörður: Trausti Sigurbjörnsson
Hægri bakvörður: Sigurður Eyberg Guðlaugsson
Vinstri bakvörður: Kristinn Jónsson
Miðverðir: Finnur Orri Margeirsson og Marko Valdimar Stefánsson
Tengiliðir: Frans Elvarsson og Björn Daníel Sverrisson
Sóknartengiliður: Kristinn Steindórsson
Hægri kantur: Aaron Palomares
Vinstri kantur: Þórarinn Ingi Valdimarsson
Framherji: Björn Bergmann Sigurðarson



