Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. september 2008 13:23
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Gerrard og Torres klárir í leik Liverpool gegn Man Utd
Gerrard og Torres verða með Liverpool á morgun.
Gerrard og Torres verða með Liverpool á morgun.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard og Fernando Torres, bestu leikmenn Liverpool, eru klárir í slaginn þegar liðið mætir Manchester United á Anfield klukkan 11:45 í fyrramálið. Gerrard missti af landsleik Englendinga í vikunni eftir að hafa farið í smávægilega aðgerð og Torres hefur nú náð sér af meiðslum á aftanverðum lærisvöðva.

Báðir verða þeir því í leikmannahópi Liverpool á morgun eftir að hafa komist í gegnum létta æfingu í dag.

,,Þeir eru báðir miklu betri," sagði Benítez. ,,Þeir komust í gegnum fulla æfingu í morgun. Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa þessa tvo gæðaleimkenn sem geta breytt leik."

,,Ég er ekki hissa á að þeir séu klárir því læknaliðið hefur unnið gott starf og leikmennirnir hafa lagt hart að sér með sjúkraþjálfurunum til að komast í form."


Þá mun Albert Riera væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir Liverpool eftir að hafa komið frá Espanyol á lokadegi félagaskiptanna. Brasilíski miðjumaðurinn Lucas Leiva verður hinsvegar ekki með því hann kom seint til baka úr landsleik.
Athugasemdir
banner
banner