Guðni Erlendsson fyrirliði Njarðvíkur hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna þrítugur að aldri.
Guðni tilkynnti þetta eftir 3-1 sigur Njarðvíkinga á Þór í lokaumferð fyrstu deildarinnar á laugardag.
Ástæða þess að Guðni hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna er sú að hann vill sinna fjölskyldu sinni betur.
Guðni hóf meistaraflokksferil sinn með Njarðvík árið 1996 og alls lék hann 217 leiki með liðinu á ferlinum.





