Theodór Elmar Bjarnason, miðjumaður Lyn í Noregi, er eftirsóttur um þessar mundir og má fastlega gera ráð fyrir því að tilboð berist í leikmanninn þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar.
Útsendarar frá franska úrvalsdeildarliðinu Le Mans fylgdust með Theodóri skora annað marka Lyn í 2-3 tapleik gegn Ham Kam á sunnudaginn en lið frá Hollandi og Belgíu hafa einnig augastað á honum.
Þá eru forráðamenn Viking frá Stafangri sagðir vera að undirbúa tilboð í Theodór sem hefur þótt einn besti leikmaður Lyn á þessu keppnistímabili.
Le Mans er sem stendur í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Lyon.
Athugasemdir