Heimild: BBC
Luka Modric miðjumaður Tottenham verður frá næstu tvær vikurnar vegna nárameiðsla.
Þessi króatíski landsliðsmaður neyddist til að fara út af í hálfleik gegn Fulham um helgina. Nánari skoðun hefur nú leitt í ljós að Modric verður frá í tvær vikur.
Modric, sem er 23 ára, mun núna missa af leikjum Tottenham gegn Blackburn og Everton og gegn NEC Nijmegen í UEFA-bikarnum.
Tottenham keypti Modric frá Dinamo Zagreb í sumar en hann hefur leikið ellefu leiki á leiktíðinni.
Modric byrjaði rólega en hefur verið að sýna betri takta eftir að Harry Redknapp tók við Tottenham.
Athugasemdir