Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 18. desember 2008 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Jökull í nýliðavalinu: Ef Beckham sættir sig við þetta þá get ég það
Jökull í leik með Víkingi gegn ÍA.
Jökull í leik með Víkingi gegn ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
,,Það er fullt af leikmönnum sem eru toppleikmenn í háskólaboltanum en komast ekki í valið.''
,,Það er fullt af leikmönnum sem eru toppleikmenn í háskólaboltanum en komast ekki í valið.''
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
,,Ég hef fengið mikið hrós fyrir frammistöðuna svo ég hef verið að gera eitthvað rétt.''
,,Ég hef fengið mikið hrós fyrir frammistöðuna svo ég hef verið að gera eitthvað rétt.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,, Ef ég get farið eitthvað til að lifa af því að spila fótbolta þá langar mig til að gera það.''
,, Ef ég get farið eitthvað til að lifa af því að spila fótbolta þá langar mig til að gera það.''
Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
,,Maður getur í raun ekki kvartað sama hvert maður verður valinn.''
,,Maður getur í raun ekki kvartað sama hvert maður verður valinn.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Ingason Elísabetarson fyrrverandi leikmaður KR og Víkings er í hópi 65 drengja sem eru í nýliðavali bandarísku atvinnumannadeildarinnar, MLS sem fer fram eftir áramót.

Hann er að ljúka námi sínu í stærðfræði við Greensboro háskólann í Norður Karolínu og útskrifast úr skólanum í dag. Hann vonast nú til að halda áfram dvöl sinni í Bandaríkjunum og spila með bandarísku liði á næsta ári. Við ræddum við hann í gær og ræddum við hann um nýliðavalið sem hann er nú kominn í.

Mjög mikilvægt að standa sig
Sem fyrr sagði eru 65 drengir sem voru validr úr 45 háskólum í Bandaríkjunum og verða í nýiðavali næsta árs. Skólar leikmannana sækja um fyrir sína leikmenn á listann en svo er nefnd sem velur úr tilnefningum og Jökull sem hefur staðið sig mjög vel með liði sínu komst í gegnum þann niðurskurð.

,,Þeir sem eru valdir fara svo í janúar í einskonar æfingabúðir. Þá er skipt í fjögur lið og allir spila við alla. Þangað mæta fulltrúar frá öllum liðunum og umboðsmenn og fleiri. Tveimur dögum eftir að þessu lýkur fer svo fram nýliðavalið."

,,Flest MLS liðin byggja val sitt á því sem þau sjá þarna svo það er mjög mikilvægt að standa sig þar,”
sagði Jökull í samtali við Fótbolta.net í gær en við spurðum hann hvort hann hafi þurft að koma sér á framfæri til að eiga möguleika á að komast þarna inn eða hvort aðeins hafi verið metið eftir frammistöðu hans.

,,Það er bæði. Það voru lið búin að hringja í þjálfarana og athuga málið. Svo þarf líka að vinna í að koma manni á framfæri og þjálfararnir gera það fyrir mann. Það er fullt af leikmönnum sem eru toppleikmenn í háskólaboltanum en komast ekki í valið,” sagði hann.

Þrisvar sinnum á fjórum árum komst lið Jökuls í 16 liða úrslit NCAA deildarinnar yfir allt landið og sjálfur hefur hann verið valinn í lið ársins fyrir frammistöðu sina og vakið athygli þjálfara í MLS deildinni og USL deildinni sem er næst efsta deildin sem Teitur Þórðarson vann á síðustu leiktíð.

,,Ég hef spilað á miðjunni öll fjögur árin, aðallega sem djúpur miðjumaður og mér hefur gengið mjög vel,” sagði hann. ,,Ég hef fengið mikið hrós fyrir frammistöðuna svo ég hef verið að gera eitthvað rétt.”

Ekki hægt að lifa á laununum sem nýliðum bjóðast
Jökull hefur spilað með KR og Víkingi hér á landi undanfarin ár en tók sér frí frá íslensku knattspyrnunni í sumar. Hann hefur ekki hug á að snúa heim til Íslands á næstunni og ætlar sér að finna lið úti.

,,Ég vil aðallega spila einhvers staðar annars staðar en heima á næstunni. Ef ég get farið eitthvað til að lifa af því að spila fótbolta þá langar mig til að gera það. Það hefur alltaf verið draumurinn,” sagði Jökull en hann er þó ekki öruggur um að verða valinn í nýliðavalinu.

,,Það eru ekki allir valdir en þó leikmaður sé valinn þá er hann aldrei öruggur með að fá samning. Þeir þurfa að fara í undirbúningstímabilið hjá liðinu og á því miðju er tekin ákvörðun um hvort samningur sé í boði. Þannig gæti leikmaður sem var þrítugasti í valinu fengið miklu betri samning en sá tíundi."

,,Annar galli við þetta er að flest MLS liðin borga flestum nýliðum skelfilega samninga. Þó svo ég standi mig vel þarna og verði valinn í topp tíu er ekkert öruggt að ég geti samið því þeir bjóða nýliðum 12-18 þúsund dollara á ári sem er ekki hægt að lifa á,”
sagði hann en eru leikmennirnir þá að vinna með boltanum í fyrstu?

,,Nei, reyndar gera þeir það ekki. Margir af þessum strákum eru vel stæðir. Foreldrarnir hjápa þeim oft í gegnum háskólanámið sem er mjög dýrt og halda þeim í raun uppi. Ég held að það haldi svo áfram þegar þeir fá svona lág laun. En fyrir útlendinga er ekki möguleiki á að gera lifað á þessu."

,,Ég myndi ekki semja upp á svona lítinn samning og þá myndi ég bara skoða eitthvað annað. Ég mun reyna allt sem ég get til að geta spilað einhversstaðar annars staðar en á Íslandi því mig langar að prófa það. Svo er ástandið heima ekki til að bæta það. Ég hef heyrt að það séu margir að reyna að komast út til að spila fótbolta erlendis.”


Ef Beckham sættir sig við þetta þá get ég það
Íslendingar þekkja lítið til bandarísku MLS deildarinnar enda er ekki sýnt frá henni í íslensku sjónvarpi og allar fréttir úr henni ganga út á helstu stjörnu deildarinnar, David Beckham sem leikur með LA Galaxy. Jökull segir deildina sterka.

,,Deildin er sæmilega sterk. Það eru virkilega góðir leikmenn hérna en ég veit ekki hvort deildin sé jafnsterk og leikmennirnir gefa tilefni til,” sagði hann. ,,Ég veit ekki hvort það þurfi meiri hefð eða að þjálfunin sé ekki jafngóð eða hvað. Sum af þessum liðum standa í ensku liðunum þegar þau koma hingað í æfingaferðum en það er kannski ekki beint að marka það. Ég held að ef Beckham sættir sig við þetta þá get ég alveg sætt mig við þetta.”

Þegar kemur að nýliðavalinu gæti Jökull lent í hvaða liði sem er og hefur ekkert með það að segja hvar hann lendir. Hann segir það litlu skipta enda öll liðin spennandi.

,,Maður verður bara að sætta sig við það sem kemur. Það góða við þetta er að nánast öll liðin eru í mjög flottum borgum, stórborgum. Yfirleitt er staðsetningin ekki eitthvað til að kvarta yfir. Það er best að vera valinn í lið sem vantar leikmann í þá stöðu sem maður spilar. Þó liðið sé kannski ekki mjög gott. Maður getur í raun ekki kvartað sama hvert maður verður valinn.”

Þyrfti tvö ár til að slá Beckham út
Los Angeles er Beckham vegna þekktasta lið bandarísku deildarinnar þrátt fyrir að það sé ekki besta liðið. Jökull hefur ekkert uppáhaldslið sem hann myndi vilja fara til og segir að Galaxy væri líklega ekki góður kostur enda Beckham að spila sömu stöðu og hann.

,,Það myndi ekkert skemma fyrir að vera valinn af LA Galaxy. En Beckham er að spila svipaða stöðu og ég held ég þyrfti að gefa því eitt til tvö ár til viðbótar að slá hann út ef ég færi þangað,” sagi Jökull.

,,Ég væri sáttur við hvaða lið sem er. Auðvitað væri gaman að fara til LA þar sem eru tvo lið, og þrjú lið í Kaliforníu reyndar. Það væri gaman að prófa eitthvað svoleiðis. Ég vona bara það besta, að ég verði valinn í lið þar sem ég á mestan séns á sæti í liðinu.”

Ekki skuldbundinn að spila með liðnu sem velur mig
Um miðjan janúar skýrist svo hvort Jökull verði valinn í nýliðavalinu en hvað ef hann næði ekki samningum við það lið sem velur hann, mætti hann fara til annars félags í deildinni.

,,Ekki nema með þeirra leyfi,” svaraði Jökull. ,,Yfirleitt leyfa þeir það ekki og ef þeir gera það þurfa hin liðin annað hvort að borga eða láta valrétt á næsta ári. Þetta er bara eins og í NBA körfuboltanum. Deildin á í raun allt og borgar flestum leikmönnum samningana. Það eru ekki félögin sem gera það.”

,,Félögin geta valið mann en það þýðir ekki að ég sé skuldbundinn að spila með þeim. Það þýðir bara að ef ég ákveð að spila í MLS þá eiga þeir réttinn á mér. Það gerðist til dæmis í fyrra að einn stákur var valinn í lið en hafði ákveðið að fara ekki í nýliðavalið sjálfur. Því eyddi liðið valréttinum sínum, en hann er mjög góður og ef hann ákveður að fara í deildina þá eiga þeir réttinn á honum.”


Gæti fengið betur borgað í næst efstu deild
Næst efsta deild í Bandaríkjunum heitir svo USL en þó geta lið ekki gengið á milli deildanna heldur þarf að fara í gegnum langt ferli til að fá inngöngu í MLS. Þannig stýrði Teitur Þórðarson liði Vancouver Whitecaps til sigurs í USL deildinni í ár en samt spilar liðið áfram í henni á næstu leiktíð. Jökull segir þá deild geta hentað sér vel enda möguleiki á hærri launum en í MLS.

,,Það er alveg möguleiki á að ég fari þangað. Ég á miklu meiri möguleika á að fá betur borgað þar, allavega sem dugar til að lifa á því. Ég myndi klárlega skoða það og held að ég ætti að geta komist þar að. Ef þetta gengur ekki mun ég klárlega skoða það áður en ég ákveð að koma heim. Þá get ég prófað að spila fótbolta og taka því rólega.”
Slapp
banner
banner
banner