Guðrún Jóna Kristjánsdóttir var í haust ráðin þjálfari kvennaliðs Aftureldingar sem síðar sameinaðist við Fjölni. Hún mun þjálfa sameinað lið í Landsbankadeildinni í sumar en það verður hennar fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hún hafði undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari Helenu Ólafsdóttir hjá KR.
Við settumst niður með Guðrúnu Jónu í gær og ræddum við hana um starfið og tímabilið framundan hjá Aftureldingu/Fjölni.
Við settumst niður með Guðrúnu Jónu í gær og ræddum við hana um starfið og tímabilið framundan hjá Aftureldingu/Fjölni.
Afhverju valdirðu að fara í Aftureldingu?
Þegar þeir höfðu samband við mig í haust náðum við svo rosalega vel saman. Þeirra hugmyndir og mínar hugmyndir pössuðu mjög vel saman. Þetta er ungt félag í kvennaboltanum með ungar og efnilegar stelpur. Ég sá fyrir mér að þetta væri eitthvað sem ég gæti byggt upp og mér fannst það mjög spennandi.
En voru ekki fleiri félög sem höfðu samband við þig?
Jú, það voru nokkur félög sem sýndu mér áhuga, en þetta small hjá mér og Aftureldingu. Þó þetta sé lítið félag er það með rosalega stórt hjarta. Þeir hafa áhuga á að byggja liðið upp á sama grundvelli og ég vildi. Að hafa gott þjálfarteymi í kringum liðið, góða umgjörð og einbeita sér að því. Gera stelpunum kleift að æfa fótbolta af fullum krafti.
Varstu alltaf ákveðinn í að verða aðalþjálfari núna?
Já, ég var alveg ákveðin í því. Ég er búin að eiga tvö góð ár með Helenu og þegar hún fór ákvað að fara í frí taldi ég það rétta tímann á að ég yrði aðalþjálfari.
Þú gast samt ekki verið á fullu með Helenu í sumar var það nokkuð?
Nei, ég eignaðist lítinn strák í febrúar og á tvö önnur börn. Maðurinn minn er svo að þjálfa á fullu líka svo við ákváðum að ég væri bara hálf með henni. Ég mætti bara á æfingar fyrir erfiðustu leikina og var svo með henni og Gullu (Guðlaug Jónsdóttir) í öllum leikjum. Við héldum samstarfinu þannig áfram í sumar en ég hafði verið með henni í vetur þangað til ég átti guttann.
Hvernig líst þér á þetta verkefni hjá Aftureldingu, verður þetta nokkuð byggt upp á sama hátt og hjá Aftureldingu í sumar?
Nú er búið að sameina liðið við Fjölni og við ætlum að byggja ungu stelpurnar upp hjá báðum félögum. Það voru svo margir útlendingar í fyrra svo liðið er mjög breytt eins og er. Við eigum kannski eftir að styrkja okkur eilítið meira en annars er stefnan að byggja upp þessar ungu stelpur sem eru fyrir hjá félaginu.
Ætliði að fá einhverja erlenda leikmenn?
Það gæti verið að tvær af þeim sem voru í fyrra komi en það er ekki öruggt með það.
Hvernig er hópurinn núna þegar búið er að sameina liðin?
Þetta er stór hópur af 2. flokki og meistaraflokki en ennþá erum við með of fáar stelpur á meistaraflokks aldri. En hópurinn samanstendur af 20 – 25 stelpum núna. Það eru margar stelpur á 2. flokks aldri í hópnum, 2. - og meistaraflokkur æfa á fullu saman og þær sem eru tilbúnar koma til með að fá tækifæri með meistaraflokki.
Það var vandamál hjá Aftureldingu í fyrra að hópurinn var í raun ekki klár fyrr en mótið var byrjað. Hvernig verður því háttað núna?
Það er stefnan að hópurinn verði næstum klár fljótlega eftir áramót. Við stefnum að því að fá alla inn sem allra fyrst svo hópurinn verði næstum klár um miðjan janúar þó gætu einhverjar bæst við seinna sem eru t.d í námi erlendis.
Hvernig býstu við að Afturelding/Fjölnir verði miðað við hin liðin í deildinni?
Það er voðalega erfitt að gera sér grein fyrir hvernig deildin verður næsta sumar. Það eru svo rosalega miklar breytingar á liðunum. Þær urðu í sjötta sæti síðasta sumar. Það er alltaf stefnan á að gera betur og við ætlum okkur að vera í þessum pakka áfram eins og í fyrra og stríða svo hinum liðunum. Ég hef trú á að við verðum á þeim stað.
Stóru liðin eru búin að veikjast verulega, þó sumir vilji gera lítið úr því, þá hafa þau veikst verulega frá síðustu leiktíð. Gerir það deildina ekki meira spennandi?
Að missa allar þessar landsliðskonur segir að liðin veikist við það. En það gefur yngri stelpum sem hafa ekki fengið tækifæri í þeim liðum meiri séns á að standa sig. En deildin kemur til með að jafnast og stökkið á milli þeirra efstu, sem voru Valur og KR í sumar, og hinna, minnkar verulega, það er alveg pottþétt.
Eigum við þá eftir að sjá þau lið tapa fyrir þeim sem voru fyrir neðan, eitthvað sem var ekki möguleiki áður?
Það er vonandi að það gerist, að það verði ekki þannig að ef lið tapar einum leik þá er sumarið búið eins og hefur verið undanfarin ár. Vonandi verður það ekki þannig núna og þetta bil minnki enn meira. Það minnkaði svolítið í fyrra og deildin jafnaðist fannst mér. Ég vona að það verði enn minna bil næsta sumar. Aftur á móti verða alltaf þessi lið, Valur, KR og Breiðablik ennþá sterk. Svo eru Fylkir og Stjarnan að bæta við sig miklum mannskap svo þetta verður mjög spennandi deild.
En Afturelding/Fjölnir verður í raun alveg nýtt lið frá því sem við sáum í sumar er það ekki?
Jú, þær eru ekki vanar að spila saman. Það tekur alltaf tíma að sameina og stilla saman tveimur liðum en þetta hefur byrjað mjög vel og stelpurnar eru rosalega jákvæðar. Þetta lítur allt mjög vel út og ég er mjög bjartsýn. Stelpurnar taka vel í það sem við erum að gera og tilbúnar að leggja á sig. Það er komin sátt í sameininguna. Það er alltaf tilfinningamál þegar lið eru sameinuð. Það er erfitt þegar þú hefur ákveðið hjarta í félagi og það breytist aðeins en stelpurnar eru sáttar.
Er hópurinn meira úr öðru liðinu?
Þetta er mjög svipað, eiginlega bara helmingur og helmingur.
Eruð þið að missa fleiri leikmenn úr liðinu sem ekki hefur verið greint frá ennþá?
Nei, vonandi erum við að ganga frá samningum við okkar leikmenn á næstu dögum. Þessir leikmenn sem fóru úr Fjölni voru búnir að ákveða fyrir sameininguna að það væri kominn tími á að reyna annað. En þær sem fyrir eru verða bara að standa sig.
Þið tilkynntuð um ráðningu á þjálfarateymi sem meðal annars stóð af tveimur sjúkraþjálfurum, er mikil hugsun á bakvið þetta?
Já, mér finnst mjög mikilvægt að það sé farið í alla þætti þjálfunarinnar, og fyrir mig að sjá um alla þessa þætti er mikið starf. Ég er heldur ekki sterkust á þessu sviði og því mikilvægt að fá fagfólk með mér. Þáttur sjúkraþjálfarans er mikið af fyrirbyggjandi æfingum vegna meiðsla og Afturelding hafði lent í því síðasta árið að mikið af leikmönnunum voru að meiðast. Við fórum í samvinnu með sjúkraþjálfarann, þrekþjálfarann og svo aðstoðarþjálfarann. Við vildum hafa þetta fyrirbyggjandi og byggja alveg upp frá grunni. Það er mjög mikilvægt fyrir starfið að hafa það í lagi og þess vegna fékk ég þetta teymi með mér.
Finnst þér þetta hafa vantað hjá félögum hérna?
Já, mér finnst það. Þetta er mjög misjafnt hjá félögum en þarna ertu kominn með pakka. Það er allt sérfólk á sínu sviði. Með því að sameina þetta færðu bestu þjálfun sem kostur er á. Stelpurnar eru að fá toppþjálfun á alla staði. Í þreki, með sjúkraþjálfaranum, og fótboltanum. Þarna er kominn flottur pakki.
Svo er Hlynur Áskelsson með þér sem aðstoðarþjálfari, hafðirðu unnið með honum eitthvað áður?
Hann er náttúrulega algjör perla. Við höfum aldrei unnið saman og hittumst bara á kaffihúsi og okkar hugmyndir smellpössuðu saman. Það var aldrei spurning í okkar huga að prófa þetta samstarf og það hefur gengið rosalega vel.
Hvernig datt þér í hug að leita til hans?
Hann er að vinna með manni sem tengist Aftureldingu. Ég fékk símtal frá félaginu og var spurð hvernig mér litist á að vinna með Ceres 4. Ég sagði, ‘Ceres 4? Er það ekki eitthvað Mercedes Club? Hvað er það? Úff....’. Svo skoðaði ég hans feril og hitti hann og við smellpössuðum saman með okkar hugmyndir. Hann hefur náttúrulega starfað með nokkrum frábærum þjálfurum eins og Atla Eðvaldsyni, Ásgeiri Elíassyni og Frey Sverrissyni. Auk þess er hann sjálfur mikið í þrekþættinum og fótboltaþættinum. Þetta kom mér verulega á óvart en hann er frábær þjálfari og ég er virkilega heppin með aðstoðarmann. Hann er allt önnur týpa en ég átti von á, við hittumst bara einu sinni og leyst báðum rosalega vel á. Honum leist rosalega vel á mínar hugmyndir og það sem ég ætla að gera.
Þú kemur frá KR og ert þegar komin með einn leikmann þaðan, Margréti Þórólfsdóttur, áttu von á að fá fleiri?
Ég veit ekki hvernig það verður en þær eru velkomnar sem vilja koma til mín. Ég hef ekkert sérstaklega verið að leita í KR, en þær þekkja mig og ef þær hafa áhuga á að starfa undir minni stjórn eru þær velkomnar. Það er alltaf þannig í einhverjum félögum að einhverjar stelpur fá ekki tækifæri og vilja breyta til og fara annað. Þá er oft leitað til þeirra sem þær kannski þekkja. Ég er rosalega ánægð að fá Margréti, hún er góður miðjumaður sem ég þekki vel til. Hún verður alveg örugglega lykilmaður. Hún hefur verið við liðið hjá KR og verið að keppast við sterkustu miðjumenn landsins í KR og lært mikið af þeim. Nú er komið að henni að blómstra sjálf og ég er viss um að hún gerir það.
Finnurðu fyrir meiri metnaði í leikmönnum í dag en áður bara vegna þess að Ísland er komið á Evrópumót landsliða?
Já ég finn fyrir því. Bara þetta skref hjá mörgum að drífa sig út í atvinnumennsku og ná að hafa fótboltann sem aðalatvinnu. Þessar yngri stelpur sjá að þetta er hægt og þetta er framtíðin og það ýtir alveg rosalega undir, alveg niður í grasrótina. Maður var búin að vonast til að þetta gæti gerst og hafði trú á að íslenska kvennalandsliðið gæti orðið fyrsta liðið til að komast inn á svona stórmót. Það hefur oft vantað herslumuninn en Siggi Raggi hefur náð þeim mun sem hefur vantað. Þetta er rosalega stórt skref fyrir íslenskan kvennabolta.
Finnurðu það jafnvel á æfingum hjá þér?
Það eru allir miklu meira tilbúnir að leggja á sig og líta á þetta sem stórt ár í íslenskum kvennabolta. Ég held að allar fótboltakonur vilja taka þátt í því hvernig sem það verður.
Ef þú styrkir liðið, leitarðu meira innanlands eða erlendis?
Ég horfi ekkert meira erlendis, en það virðist vera rosalega erfitt að fá leikmenn á Íslandi. Afturelding er félag sem er að bjóða upp á góða þjálfun og gott þjálfarateymi en hefur ekki peninga uppá að bjóða. Það virðist samt vera svolítið í kreppunni í dag hjá öðrum liðum að þau hafa uppá peninga að bjóða. Það er erfitt fyrir okkur að keppa við það. Eins og staðan er núna verður að koma í ljós hvað við gerum. Við erum alltaf að leitast eftir, hvort sem það eru íslenskir eða erlendir leikmenn til að styrkja liðið. Fyrst og fremst byggjum við samt á þeim leikmönnum sem eru fyrir hjá félögunum og ef það bætist eitthvað við þá er það bara plús. Ég er ekki að leitast eftir einni stöðu frekar en annarri heldur bara að breikka hópinn. Ég er með virkilega efnilega leikmenn en vantar breidd svo við séum með hóp sem stenst hinum liðunum snúning með að hafa 16-18 leikmenn sem eru tilbúnir í meistaraflokk.





