Henrik Bødker markvörður frá Danmörku sem gekk í raðir Þróttar í gær telur sig vera meira en tilbúinn til að spila í efstu deild hérna á Íslandi.
Henrik sem er 27 ára gamall lék með ÍBV síðari hluta sumarið 2007 og sýndi oft á tíðum frábæra takta í marki liðsins.
Hann spilaði svo með Hetti í 2. deildinni í sumar og lék vel og var til að mynda valinn leikmaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net.
,,Ég er alveg fullviss um að ég sé tilbúinn í úrvalsdeildina, mér hefur alltaf fundist það en stundum verður maður að taka skref niður til að taka tvö upp. Ég er búinn að spila í dönsku úrvalsdeildinni og marga leiki í 1. deildinni, mér finnst ég meira en tilbúinn," sagði Bødker í samtali við Fótbolta.net eftir að hann gekk frá samningum.
,,Ég man eftir leik gegn Þrótti þegar ég var hjá ÍBV og þá voru þeir með nokkra sterka einstaklinga þá en ég sá ekki marga leiki með þeim á síðustu leiktíð. Þróttur átti góða leiktíð og ég er viss um að móralinn er mjög góður. Þegar þetta tækifæri kom þá hringdi í gamlan félaga, Dennis Danry sem ég spilaði með hjá Fremad Amager í dönsku 1. deildinni og hann hafði bara góða hluti að segja um leikmennina, þjálfarana og allt sem við kemur félaginu."
Danry og Bødker léku saman hjá Fremad Amager á árunum 2005-2007 en Danry mun vera aðstoðarmaður Gunnars Oddsonar sem og að spila með liðinu á næstu leiktíð.
,,Ég er spenntur fyrir því að spila með honum aftur því það er gott að spila með honum og hann hefur mikinn metnað til að vinna. Ég las það að hann er orðinn aðstoðarþjálfari og það kemur mér ekki á óvart og ég sé það fyrir mér að hann muni standa sig vel í það. Þegar svona er á er ég ekki hræddur um að aðlagast og ég held að ég sé nú þannig að persóna að ég á ekki erfitt með að aðlagast breyttum aðstæðum," sagði Bødker og hann segir að fleiri lið hér á landi hafi haft samband við sig.
,,Ég ræddi við nokkur lið á Íslandi og í Danmörku en bara eitt félag fór ég í alvarlegar viðræður við. Þú þarft ekki að vera galdrakall eða geimflugasérfræðingur til að átta þig á ástandinu í heiminum varðandi peninga og það snertir fótboltann. Ég fann það þegar ég ræddi við lið en þegar Þróttur hafði samband varð ég mjög áhugasamur að ganga í raðir þeirra. Þetta er áskorun fyrir mig því ég er að fara að spila fyrir stórlið í Reykjavík."
Þróttur sem hefur verið mikið jó-jó lið hélt sér uppi á síðustu leiktíð, hverjar eru væntingar hans fyrir komandi leiktíð?
,,Það er mjög erfitt fyrir mig að segja því ég held að íslenska deildin muni breytast mikið útaf kreppunni. Ég veit líka ekki hver markmið Þróttar eru svo ég vil ekki fara að ræða svoleiðis hluti fyrr en ég hópurinn hefur rætt það," sagði Bødker að lokum í samtali við Fótbolta.net.



