Samningurinn undirritaður
,,Ég er fæddur og uppalinn í Keflavík og hef verið liðsmaður þess í tæp 20 ár í gegnum tíðina.''
,,Ég er fæddur og uppalinn í Keflavík og hef verið liðsmaður þess í tæp 20 ár í gegnum tíðina.''
Samningurin handsalaður við Kristján Guðmundsson þjálfara í dag
,,Keflavík er í Evrópukeppni og mér líst vel á hópinn, þjálfarann og allt í kringum þetta.''
,,Keflavík er í Evrópukeppni og mér líst vel á hópinn, þjálfarann og allt í kringum þetta.''
Jóhann Birnir Guðmundsson
,, Ég er búinn að bjóða honum upp á heitt súkkulaði og köku og er að reyna að mýkja hann upp, svo förum við í viðræður um það á eftir.''
,, Ég er búinn að bjóða honum upp á heitt súkkulaði og köku og er að reyna að mýkja hann upp, svo förum við í viðræður um það á eftir.''
Framherjinn Haukur Ingi Guðnason gekk í dag í raðir uppeldisfélags síns, Keflavíkur, frá Fylki og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Haukur Ingi er þrítugur og snýr nú aftur til félagsins þar sem hann ólst upp. Hjá Keflavík hittir hann fyrir að nýju besta vin sinn, Jóhann Birni Guðmundsson sem gekk í raðir félagsins að nýju í sumar og Haukur sagði það hafa haft áhrif á endurkomu sína núna.
Klúbbur sem stendur mér nærri
,,Fyrir tólf árum síðan þegar leiðir okkar Jóhanns Birnis vinar míns í Keflavík skildu ákváðum við að við myndum einhvern tíma spila aftur. Það var alltaf ætlunin að spila með honum," sagði Haukur Ingi í samtali við Fótbolta.net í dag en hann kemur frá Fylki þar sem hann hefur verið síðan 2003.
,,Mín pæling var upphaflega að taka ár til viðbótar hjá Fylki en málin þróuðust þannig að það hentaði besta að skipta í Keflavík núna á þessum tímapunkti. Það er besta mál, Keflavík er í Evrópukeppni og mér líst vel á hópinn, þjálfarann og allt í kringum þetta," sagði Haukur Ingi.
,,Ég er fæddur og uppalinn í Keflavík og hef verið liðsmaður þess í tæp 20 ár í gegnum tíðina. Þetta er klúbbur sem stendur mér nærri. Mér leið mjög vel hjá Fylki og var mjög ánægður þar. Það er mjög flottur klúbbur sem mjög flott fólk stendur að baki. Ég óska þeim alls hins besta og hef trú á að þeir geti verið spútnik lið næsta sumars."
Hundfúll að ná ekki að trufla FH
Keflavík átti frábært sumar í Landsbankadeildinni og var lengi vel í toppsæti deildarinnar sem liðið tapaði í lokaumferðinni eftir tapleik gegn Fram. Á sama tíma mætti Fylkir liði FH í Árbænum en FH tryggði sér titilinn með sigri í þeim leik.
,,Ég er náttúrulega í því liði sem ég er í hverju sinni og reyndi mitt besta fyrir Fylki. Ég óskaði þess náttúrulega að Keflavík myndu verða meistarar, ég neita því ekki. Fyrst þeir náðu ekki að klára þetta sjálfir var ég hundfúll að geta ekki hafa átt einhvern þátt í þessu með því að trufla FH í síðustu umferð. Það gekk mjög vel hjá Keflavík í sumar sem er hið besta mál og ég vona að það verði áframhald á því á næsta ári."
Þegar Jóhann Birnir kom til Keflavíkur í sumar valdi hann treyjunúmerið 14 hjá liðinu, meðal annars þar sem besti vinur hans, Haukur Ingi spilaði alltaf í því númeri. Nú eru þeir báðir komnir til Keflavíkur og ljóst að þeir bera ekki báðir númerið á bakinu.
,,Hann situr hérna á móti mér og við erum í samningaviðræðum um númerið. Ég er búinn að bjóða honum upp á heitt súkkulaði og köku og er að reyna að mýkja hann upp, svo förum við í viðræður um það á eftir. Kannski verður undanþága og tveir númer 14, nei nei, það hlýtur að finnast lausn á því, þetta er ekkert stórmál. Svo framarlega sem ég fæ númerið," sagði Haukur Ingi léttur í bragði.
Er í þessu til að takast á við áskoranir
Sem fyrr sagði var Keflavík við toppsætið í Landsbankadeildinni í allt sumar og Haukur Ingi sér ekki neina ástæðu til annars en að viðhalda því enda hefur hann alltaf stefnt að toppbaráttu.
,,Allstaðar sem ég hef spilað stefni ég á að vera í toppbaráttu. Ég stefndi á að vera í toppbaráttu með Fylki síðasta sumar en það gekk ekki alveg eftir. Þetta er mjög góður og þéttur hópur en það eru einhverjir búnir að heltast úr lestinni. Það er sérstaklega komið skarð í vörnina, en ég held að það verði fyllt og hópurinn muni standa betur saman og gera enn betur en síðasta sumar."
Lið Keflavíkur er gríðarlega vel mannað fram á við og markamaskínur eins og Guðmundur Steinarsson, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Magnús Þorsteinsson og Hörður Sveinsson eru fyrir hjá liðinu. Haukur Ingi þarf því að berjast fyrir stöðu sinni næsta sumar.
,,Þetta er hörkulið og ég verð bara að leggja mig fram til að sýna hvað í mér býr og að ég eigi heima í þessu liði. Það er ekkert flókið en það er bara besta mál, ég er líka í þessu til að takast á við áskoranir og það er áskorun að vera í Keflavíkurliðinu og reyna að ná árangri með Keflavíkurliðinu og svo framvegis. Það er eitt af því sem ég þrífst á," sagði Haukur Ingi.
Bjartsýnni núna en oft áður
Haukur Ingi hefur ekki náð að klára heilt tímabil án vandræða undanfarin ár og meiðsli hafa hrjáð hann.Hann er hinsvegar kominn á gott ról núna og merkin eru til staðar fyrir því að hann muni loksins geta farið í næsta tímabil án vandræða.
,,Það má segja að síðasta þriðjung síðasta móts hafi ég fundið taktinn aftur. Það gekk mjög vel og ég fann mig mjög vel. Þá varð smá breyting á því sem áður var að við breyttum álaginu sem var á mér milli leikja og það minnkaði. Ég vonast til að vera búinn að finna formúlu sem virkar til að halda skrokknum í lagi," sagði hann.
,,Á þessari stundu líður mér mjög vel. Ég er búinn að æfa mjög vel í allan vetur og hlaupa og vera í fótbolta. Ég hef meira að segja getað hlaupið meira úti á því undirlagi sem ég hef ekki getað áður. Til að mynda á sama tíma í fyrra, þá var ég að drepast í hnénu í vetrarfrosthörkunni og var handónýtur."
,,En það hefur ekki verið sama upp á teningnum í ár svo það er vonandi að eftir langa og erfiða baráttu sé loksins eitthvað að komast í rétta átt. Ég er aðeins búinn að læra inn á líkamann, hvað má bjóða honum uppá og hvað þarf til að fá það besta út úr honum. Ég er bjartsýnni núna en oft áður."
Keflavík tilkynnti í dag að félagið hafi ráðið Ásdísi Þorgilsdóttur sem þjálfaði kvennalið félagsins á síðari hluta síðasta sumars til að sjá um þrekþjálfun hjá liðinu. Haukur Ingi telur það hjálpa sér.
,,Í dag var verið að ganga frá samningi við Ásdísi Þorgilsdóttur sem verður sérstakur einkaþjálfari sem kemur að Keflavíkurliðinu. Það er verið að fara að taka markvissara á því, ég hugsa að það verði framtíðin í íslenska boltanum eins og hefur verið að gerast úti í heimi," sagði hann. ,,Það snýr að því að koma hverjum og einum í það ástand að hann sé í sínu besta ástandi í leikjum og einstaklingsmiða þjálfunina aðeins í stað þess að setja alla undir sama hatt. Ég held að það muni koma fleirum en mér til góða."
Ekki hægt að setja alla undir sama hatt
Haukur Ingi var hjá Liverpool í nokkur ár þar sem hann kynntist því að vera hjá atvinnumannaliði og í kringum aðallið félagsins þar sem hann sat nokkrum sinnum á bekknum. Þar kynntist hann þessu.
,,Það var fitness þjálfari þar sem sá um líkamsástand leikmanna og þjálfarar sem voru með leikmönnum allan daginn. Þeir sem voru eitthvað meiddir voru undir stanslausu eftirliti sjúkraþjálfara og fitness þjálfara," sagði hann.
,,Þetta er eitthvað sem stærri félög í heiminum eru að gera. Fyrir mér hefur þetta aldrei verið sérstaklega flókið, mér finnst lykilatriðið hvernig standi ertu í í leikjum, það er það sem skiptir máli. Æfingarnar eiga að miðast að því hvernig get ég komið mönnunum í sem best stand í leikjunum. Ef það gerir það að verkum að ekki er hægt að setja alla undir sama hatt þá verður það að vera svo og menn verða að taka tillit og reyna að finna leiðir og lausnir til að tækla það."
Kaupi mér hljóðbækur fyrir bílferðirnar
Haukur Ingi er búsettur í Reykjavík og því mun hann þurfa meiri tíma til að komast á æfingar hjá sínu nýja liði en lætur það ekkert eftir sér og hyggst nýta tímann til að auðvelda sér námið sem hann stundar.
,,Ég þarf að keyra á milli núna og þarf bara að nýta tímann, kaupa mér hljóðbækur og eitthvað til að spara lesturinn heima á kvöldin. Ég er í háskóla Íslands að klára Sálfræði og kenna líka," sagði hann að lokum.


