Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   þri 03. febrúar 2009 15:08
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Frank Lampard sleppur við leikbann
Mynd: Getty Images
Frank Lampard miðjumaður Chelsea mun ekki taka út leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í 2-0 tapinu gegn Liverpool um helgina.

Lampard fékk rauða spjaldið í síðari hálfleiknum fyrir tæklingu á Xabi Alonso.

Chelsea áfrýjaði spjaldinu í gær og nú hefur það verið fellt niður af enska knattspyrnusambandinu.

Jose Bosingwa liðsfélagi Lampard mun einnig sleppa með refsingu fyrir að sparka í Yossi Benayoun í leiknum um helgina.

Enska knattspyrnusambandið gat ekki dæmd Bosingwa í leikbann eftir leikinn þar sem aðstoðardómarinnn Mo Matadar sá atvikið og því má ekki dæma eftir myndbandsupptökum.
Athugasemdir
banner
banner