FH semur ekki við austurríska framherjann
FH mun ekki bjóða austurríska framherjanum Daniel Kastner samning hjá félaginu en þetta staðfesti Lúðvík Arnarson varaformaður knattspyrnudeildar félagsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Kastner kom hingað til lands í síðustu viku og spilaði svo æfingaleik með FH gegn Stjörnunni á laugardaginn. Hann lék fyrri hálfleikinn á vinstri kantinum og þann síðari í framlínunni en náði ekki að heilla FH-inga og fær því ekki samning.
Kastner sem er 27 ára, lék síðast með SV Grödig í neðri deildunum í heimalandi sínu.
Hann hefur einnig leikið í efstu deild í Austurríki þar sem hann var á mála hjá Austria Salzburg og SV Reid.


