Það kom mörgum á óvart þegar Selfyssingar endurvöktu meistaraflokk kvenna í miðri kreppu, en meistaraflokkurinn hefur legið niðri í áratug. Fótbolta.net lék forvitni á að vita hvernig meistaraflokkurinn færi af stað og tókum við Anítu Guðlaugsdóttir fyrirliða Selfyssinga tali.
Er ekkert erfitt að byrja með meistaraflokk í þessu árferði?
Nei ég vil ekki meina það. Það var bara orðið lífsnauðsynlegt að stofna meistaraflokk fyrir stelpurnar hér. Við höfum verið með góða yngri flokka í nokkur ár og orðið íslandsmeistarar þar og má því segja að það hafi verið orðin vöntun á meistaraflokk, enda ekki verið meistaraflokkur í 10 ár.
Hvað gerðu þá þær stelpur sem vildu halda áfram í fótbolta þegar upp í meistaraflokk var komið?
Við fórum flestar til félaga í Reykjavík, bæði stelpur frá Selfossi og eins frá Hellu og Hvolsvelli. Ég t.d. fór í KR í nokkur ár þegar ég var 16 ára og þurftu mamma og pabbi að skiptast á að keyra mig á hverjum degi svo ég gæti æft fótbolta.
Hvernig hefur undirbúningur fyrir Lengjubikarinn og Íslandsmótið gengið?
Þetta hefur gengið mjög vel, það hefur verið góð mæting og allar stelpurnar að leggja mikið á sig. Við höfum keppt tvo æfingaleiki, gerðum fyrst 1-1 jafntefli við ÍA og unnum svo Keflavík 4-3 sem eru í Landsbankadeildinni.
Eins er búið að gera góða umgjörð utan um liðið, meistaraflokksráð kvenna er að standa sig vel og erum við t.d. komnar með sjúkraþjálfara og liðsstjóra. Eins munum við borða saman fyrir alla leiki í sumar, þannig að við förum að einbeita okkur að leiknum a.m.k. fjórum tímum fyrir leik. Einnig héldum við konukvöld í byrjun mars til að kynna nýstofnaðan meistaraflokk og var konukvöldið haldið í sal Fjölbrautaskólans og þar var fullt út úr dyrum.
Hvernig er leikmannahópurinn skipaður?
Hann er eingöngu skipaður heimastelpum eins og er en hver veit hvort einhverjar bætast við hópinn þegar fer að vora. Leikmannahópurinn er að stærstum hluta ungar stelpur, bæði stelpur sem hafa verið í yngri landsliðum Íslands og stelpur sem eru að fara detta þar inn og það er ótrúlegt hvað mikið af góðum stelpum eru að koma upp hér á Selfossi. Bæði er unglingastarfið orðið gott hér og svo tekur akademían við og þroskar einstaklinginn eins og sást á árangri meistaraflokksstrákanna síðasta sumar.
Eru komin einhver markmið fyrir sumarið?
Já við ætlum okkur í úrslitakeppnina í 1. deild. Við erum að æfa við topp aðstæður á hverju kvöldi, gervigras og logn og af hverju ættum við að sætta okkur við eitthvað annað en úrslitakeppnina. Dóri þjálfari ( Halldór Björnsson) leggur mikið upp úr markmiðum við okkur. Ásamt þessum hefðbundnu markmiðum hefur hann verið með annars konar markmið. Hann hendir okkur í ísbað á fimmtudögum og það voru eðlilega þvílík læti fyrstu skiptin sem við fórum í ísbað. En nú erum við að reyna að gera þetta hljóðlega, ná ásættanlegri hugarró við hörmulegar aðstæður. Þannig markmið þroska mann ekki síður.
En ert þú þá með einhver einstaklings markmið fyrir sumarið?
Já ég er með markmið sem ég byrjaði að setja mér s.l. haust og sum þeirra hafa ræst nú þegar en annars held ég markmiðunum út af fyrir mig. En auðvitað er eitt af þeim að skora fleiri mörk en litli bróðir í sumar, en hann heitir Stefán Ragnar og leikur með meistaraflokk Selfoss. Það er bókað mál að hann á ekki sjéns.
Eitthvað að lokum?
Já, það er alveg á hreinu að Bára er ekki að fara taka neina aukaspyrnu í sumar.
ÁFRAM SELFOSS!!!



