Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 20. maí 2009 08:19
Hafliði Breiðfjörð
Svíþjóð: Mark Dóru kom LdB Malmö á toppinn
Dóra Stefánsdóttir miðvallarleikmaður íslenska landsliðsins tryggði LdB Malmö 2-1 sigur á AIK í sænsku kvennadeildinni í gærkvöld.

Markið dugði LdB Malmö til að komast í toppsæti deildarinnar.

Malmö hafði komist yfir eftir stundarfjórðun en AIK jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.

Dóra skoraði svo sigurmarkið á 76. mínútu með skalla.

Hún lék allan leikinn á miðri miðjunni hjá Malmö.

Sigurinn kom LdB FC Malmö í toppsæti deildarinnar með 18 stig eftir sjö leiki. Jafnmörg stig og Umeå en markatalan hjá LdB Malmö er 24 í plús á móti 13 hjá Umeå.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner