Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 09:36
Magnús Már Einarsson
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: BBC 
Cristiano Ronaldo til Real Madrid (Staðfest)
Sagan endalausa um Cristiano Ronaldo er nú loks á enda en Portúgalinn er genginn til liðs við Real Madrid frá Manchester United á 80 milljónir punda í langstærstu félagsskiptum knattspyrnusögunnar.

Manchester United hefur staðfest að búið sé að ganga frá sölunni en félagið samþykkti tilboð Real Madrid 11.júní síðastliðinn.

Þá var Ronaldo staddur í sumarfríi í Bandaríkjunum en hann hefur núna gert sex ára samning við Real Madrid.

,,Leikmaðurinn verður bundinn Real Madrid næstu sex tímabilin. Hann verður kynntur 6.júlí á Santiago Bernabeu," sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Real Madrid í dag.

Talið er að Ronaldo muni fá 11 milljónir punda í árslaun sem myndi gera hann að launahæsta leikmanni heims en hjá United fékk Portúgalinn 6,38 milljónir punda í árslaun.

Eftir að tilboðið var samþykkt 11.júní var það einungis formsatriði hvenær félagsskiptin yrðu að veruleika og Ronaldo nú dýrasti leikmaður heims. Real Madrid fékk einnig til sín Brasilíumanninn Kaká frá AC Milan fyrir skömmu síðan fyrir 56 milljónir punda og hlaut hann þann heiður að vera dýrasti knattspyrnumaður sögunnar í örfáar vikur.

Á undan honum var það Zinedine Zidane, sem einnig var keyptur til Real Madrid á 45,6 milljónir punda árið 2001, og er það ótrúlegt að sjá að Ronaldo er nánast tvöfalt dýrari.

Það er þá ekki víst að Madridingarnir séu enn hættir, en leikmenn á borð við David Villa, Xabi Alonso og Franck Ribery eru einnig orðaðir við félagið og verður spennandi að fylgjast með því hvað Florentino Perez forseti gerir með félagið í sumar.
Slapp
banner
banner