Við sleppum ágætlega með steikur en við erum með Frakka og Portúgala sem komu í lán til okkar í janúar, það er ekkert vit í kollinum á þeim. Ariza Makukula og Sebastien Pugrenyier fá þennan titil og deila honum saman.
Aftur á móti áttaði ég mig á því þegar að ég mætti í þýskuna að ég var mun betri í þýsku en ég hélt og þurfti ekkert á þessu að halda. Ég sá tíma mínum betur varið við að æfa mig en að sitja í kennslustofu að læra eitthvað sem ég kunni nú þegar
Foreldrar mínir hefðu líklega lagt mig inn ef ég hefði sagst ætla að hætta í fótbolta því að þá hefðu þau vitað að það væri eitthvað að mér.
Á dögunum gafst lesendum Fótbolta.net tækifæri til að spyrja Grétar Rafn Steinsson leikmann Bolton og íslenska landsliðsins spurninga. Ótal spurningar bárust á Grétar en margir voru með sömu spurningarnar og að sjálfsögðu birtast þær bara einu sinni.
Spurningarnar eru fjölbreyttar og farið er yfir víðan völl en hér að neðan má sjá svörin hjá Grétari.
Grétar Rafn Steinsson er 27 ára gamall hægri bakvörður hjá Bolton Wanderers og íslenska landsliðinu. Grétar ólst upp á Siglufirði og lék með KS upp í annan flokk þegar að hann skipti yfir í ÍA. Árið 2004 fór Grétar til Young Boys í Sviss og tveimur árum síðar skipti hann í hollenska liðið AZ Alkmaar. Í janúar 2008 fór Grétar Rafn til Bolton á 3,5 milljónir punda en fleiri ensk félög höfðu sýnt honum áhuga. Grétar vann sér strax sæti í byrjunarliðinu hjá Bolton og hann hefur verið fastamaður hjá liðinu síðan hann kom frá AZ.
Örvar Þór Guðmundsson 12 ára
Hvaða 4 leikmenn sem þú hefur spilað með á þínum ferli myndir þú velja með þér til að spila í innanhúsmóti? Óla Þórðar, Pálma Haralds, Stebba Þórðar og Andy O’Brien.
Alexander Reynir Ríkharðsson, 18 ára.
Eftir að atvinnumannaferli þínum hjá Bolton (eða hugsanlega annarsstaðar) lýkur, muntu þá ekki koma og taka 1-2 tímabil með ÍA?
Nei, það ætla ég ekki að gera. Ég er búinn að spila fyrir ÍA og það er engin plön hjá mér að spila aftur fyrir ÍA. Það er fullt af hlutum sem spila þar inn í og gera það að verkum að ég mun ekki spila aftur fyrir ÍA.
Sverrir Birgir Sverrisson
Ef að Bolton væri að leita af Örfættum (lefty) spilara hverjum myndiru mæla með?
Við erum með rosalega góða örfætta leikmann og ég held að það sé enginn á Íslandi sem ég myndi ná í.
Kári Ragnarsson 13 ára
Með hvaða liði heldurðu í Ensku fyrir utan Bolton?
Ég hélt alltaf með Leeds en sú frægðarsól hefur aðeins fallið.
Gunnar Örn Runólfsson 21 árs
Grétar, hvernig er matarprogramið hjá þér á leikdegi annars vegar og á venjulegum degi hins vegar?
Á leikdegi þá er leikurinn oftast um þrjú. Þá vakna ég oftast um 10-leytið, fæ mér hafgraut og lýsi og drekk mikið vatn. Um klukkan korter í tólf fæ ég mér kjúkling og pasta og drekk áfram mikið vatn með. Síðan fæ ég mær banana eða orkustöng rétt áður en leikurinn hefst. Á venjulegum degi er hafragrautur og lýsi í morgunmat og síðan erum við með mötuneyti þar sem við erum með fisk, kjöt og allt mögulegt. Á kvöldin er það svipað, ég borða mikið kjöt, fisk, kjúkling og pasta. Þetta er það sem við lifum á, þetta er ekki það skemmtilegasta sem maður borðar en þetta þarf til að halda sér gangandi.
Guðmundur Tómas Sigfússon, 13 ára, Vestmannaeyjar:
Hvað er flottasta mark sem þú hefur skorað á ferlinum?
Ég hef alltaf verið hrifinn af markinu sem ég skoraði á KR-vellinum með ÍA einu sinni en allir vilja meina að það hafi verið með vindi. Einhverjir vilja síðan meina að markið gegn Stoke hafi verið fyrirgjöf. Fyrsta markið mitt með Young Boys var ”volley” fyrir utan teig eftir 50 sekúndur í fyrsta leiknum með þeim, það er mjög eftirminnilegt.
Haukur Hinriksson 18 ára
Hver er galdurinn við varnarleikinn á svona háu leveli, hvað hugsaru fyrst um að gera þegar maður mætir þér einn á móti einum?
Það fer eftir því á móti hverjum þó spilar og hvort að mótherjinn sé réttfættur eða örfættur. Það fer eftir því hvort að við séum að ýta honum frá markinu eða koma honum inn á völlinn þar sem aðstoð er. Þegar að leikirnir eru komnir á svona hátt tempó eins og í ensku úrvalsdeildinni þá er þetta æft alla vikuna til að menn viti sitt hlutverk. Stundum er þetta eitthvað auka sem þú þarft að hafa. Þú þarft að vera mjög ”fit”, fljótur og sterkur því að ef þú færð mjög tekníska leikmenn á þig eins og Ronaldo, Robinho eða fleiri þá þarftu að hafa trú á sjálfum þér og ætla þér að ná boltanum í stað þess að láta einhvern fara framhjá þér.
Pálína Axelsdóttir 18 ára.
Færðu aðdáendabréf, svararu þeim sjálfur?
Ég fæ mjög mikið af aðdáendabréfum og svara þeim öllum sjálfur. Þetta þekkist ekki jafn mikið á Íslandi og úti en úti er mjög mikið um þetta og bréf eru send á klúbbinn og öllu er svarað.
Hörður Hauksson, 22 ára
Hvort myndiru frekar skilja við konuna eða ganga í buffalóskóm það sem eftir er ævinnar (mátt aldrei taka af þér skóna). Þetta er mjög ósanngjörn spurning. Frekar gengi ég í Buffalo skóm því að hún myndi skilja ástæðuna.
Helgi Sigurðsson 14 ára
Hvað varstu gamall þegar þú fórst að æfa knattspyrnu?
Ég held að ég hafi verði 6-7 ára þegar að ég byrjaði að æfa. Þegar ég byrjaði var sett gólf yfir sundlaugina á veturnar og æft þar einu sinni í viku. Ég æfði mikið sjálfur og var alltaf í fótbolta, fyrstu árin eru til að hafa gaman af fótbolta og kennslan kom seinna.
Ólafur Jón Jónsson 21 árs
Hver er með stærsta kjuðann í liðinu?
Við erum með einn Ísraelsmann sem er lengi í sturtunni.
Lúkas Björn Bogason 12 ára
Hver er erfiðasti markmaðurinn sem þú hefur lent á móti?
David James hefur nokkrum sinnum eyðilagt fyrir mér gullin tækifæri til að skora þannig að ég verð að segja hann.
Einar Matthías Kristjánsson 28 ára
Hvað er að frétta af uppáhalds leikmanni mínum í sögu enska boltans Tamir Cohen?
Hann er rosalega lengi í sturtu.
Andri Magnússon 16 ára
Hver er mesta steikin í Bolton og hver tekur mest í bekk?
Við sleppum ágætlega með steikur en við erum með Frakka og Portúgala sem komu í lán til okkar í janúar, það er ekkert vit í kollinum á þeim. Ariza Makukula og Sebastien Pugrenyier fá þennan titil og deila honum saman.
Það er rosalega lítið um kraftlyftingar en ætli að það sé ekki Andy O’Brien eða Kevin Davies sem er sigurvegari þar.
Thor Andri Hallgrímsson 13 ára
Hvað þarf maður að gera til að komast í atvinnumennsku?
Leggja sig fram og það þarf að fórna miklu til ða komast þessa leið. Þetta er ekki auðvelt, þetta eru þrotlausar æfingar og maður þarf að fórna miklu. Maður þarf að taka aukaæfingar og ekki æfa bara til að æfa heldur æfa með einhverja hugsun. Æfa til að verða betri og hugsa um það þegar maður er að æfa þessa hluti.
Sigurgeir Jónasson 14 ára Hafnarfjörður
Hver er frægastur sem þú ert með í símanum þínum?
Ég er með nokkra úr landsliðinu og ætli það séu ekki þeir.
Sigurgeir Jónasson 14 ára Hafnarfjörður
Er ekki málið að taka eitthvað rosalegt fagn næst þegar þú skorar fyrir Bolton? Við vorum að grínast með að taka eitthvað en þegar að maður skorar þá verður það svo óvænt að maður nær ekki alveg að pæla í því. Ætli ég verði ekki aðeins að hugsa þetta áður en það gerist næst.
Ólafur Jón Jónsson 21 árs
Nú fórstu dálítið gamall í atvinnumennsku af hverju varstu ekki löngu farin út?
Ég kláraði stúdentspróf, ég ætlaði ekki að fara út fyrr en ég væri búinn með stúdentinn til að hafa alla möguleika ef eitthvað myndi gerast. Síðan var ekki rétta tækifærið, ég ætlaði ekki að fara út til að spila með varaliðum einhversstaðar. Mig langaði að fara á hátt plan og langaði að ná langt. Ég ákvað að annað hvort myndi ég fara alla leið eða fara í háskóla til Bandaríkjanna og ná mér í einhverja gráðu. Ég meiddist og þurfti að bíða aðeins lengur en mitt plan virkaði þó að hitt hafi ekki verið slæmur kostur.
Svavar Kári Grétarsson 13 ára
Hver er erfiðasti andstæðingurinn í Arsenal? Og hvern af þeim (í Arsenal) myndir þú helst vilja fá í lið með þér?
Það eru frábærir leikmenn í Arsenal, það skiptir engu máli hver það er. Walcott, Adebayor og Fabregas eru frábærir leikmenn en ég myndi segja Adebayor.
Páll Orri Pálsson 10 ára
Af hverju Bolton?
Það var af því að þeir keyptu mig, það er svo einfalt. Mig langaði til Englands og Bolton kom og keypti mig. Ég æfði þarna fyrir nokkrum árum og fékk ekki samning og það var gaman að sýna og sanna að þeir gerðu mistök í fyrra skipti og að komast í ensku úrvalsdeildina var frábært. Ef fleiri lið hefðu komið hefði ég kannski valið eitthvað annað en ég er mjög sáttur og líður vel.
Var það vendipunktur á þínum ferli að fá að spila með skólaliði FB þrátt fyrir að þú mættir aldrei í þýsku?
Andrés Frímann Hannesson
Mig minnir að ég hafi ekki staðið mig sérstaklega vel með skólaliðinu í FB. Ég var kannski ekki alveg með hugann við efnið þegar ég var að spila í skólamótinu. Aftur á móti áttaði ég mig á því þegar að ég mætti í þýskuna að ég var mun betri í þýsku en ég hélt og þurfti ekkert á þessu að halda. Ég sá tíma mínum betur varið við að æfa mig en að sitja í kennslustofu að læra eitthvað sem ég kunni nú þegar.
Pétur Jökull Þorvaldsson 13 ára
Hvernig leið þér þegar þú skoraðir samman inn í byrjun leiktíðar? Er ekki erfitt að takast á móti Ronaldo & co.?
Mér leið mjög vel, það var mikil pressa í fyrsta leik og það var gott að brjóta ísinn. Ég skoraði fyrsta og síðasta markið á tímabilinu, ég opnaði það og lokaði því.
Ronaldo er líkamlega sterkur og hann og Messi eru líklega bestu fótboltamenn í heimi. Þegar við spilum á móti United þá vitum við gæðin hans, reynum að takmarka tíma hans á boltanum og svæðin sem hann getur hlaupið í. Það hefur gengið ágætlega hingað til.
Arnar Kjartansson 17 ára
Hvernig er að spila á móti og hitta þessa frægu fótboltamenn eins og Ronaldo, Rooney og fleiri?
Þetta er allt venjulegt fólk eins og við öll. Þeir eru frægari og með gífurlega hæfileika. Sumir kunna að fara betur með þá en aðrir en þetta er yndislegt fólk.
Pétur Jökull Þorvaldsson 13 ára
Hvernig týpur eru þessir menn eins og Lampard, Drogba og Ronaldo og fl.?
Lampard virkar ágætis týpa. Þegar þú ert með svona mikla hæfileika og stór á heimsvísu þá þarftu að hafa sjálfstraust. Þetta eru týpur og karakterar, þeir komust alla þessa leið og þó að þeir séu misskildari en aðrir þá er það þannig. Þeir komust alla leið og það er frábært.
Nebojsa Kospenda 17 ára
Grétar, telur þú að séræfingar hjá Zelko hafi hjálpað þér fyrir atvinnumennskuna?
Já mikið. Ég fór til hans áður en ég fór út. Ég lendi í krossbandaslitum og átti í erfiðleikum með samhæfingu og annað. Hann gaf sér tíma til að hjálpa mér og hann á stóran greiða inni hjá mér. Þetta var virkilega gaman og ég bætti heilmikið sem ég þurfti á að halda áður en ég fór út.
Deividas Leskys, 17 ára
Hvað er besta móment sem þú hefur upplifað í fótbolta?
Það var virkilega gaman að skora á móti Brasilíu í sínum fyrsta landsleik. Ég hef oft verið nálægt því að ná besta mómenti, ég var í úrslitaleik í bikarnum í Hollandi og úrslitaleik um að verða meistari þannig að ætli ég verði ekki að segja Brasilíu.
Einar Sigurðsson, 15 ára
Varstu staðráðinn í að verða atvinnumaður í fótbolta þegar þú varst yngri, segðu hvernig þetta þróaðist allt saman?
Það var alltaf pottþétt frá því að ég var lítill, það að vera atvinnumaður var það eina sem ég hugsaði um og ég var álitinn klikkaður á tímabili á Siglufirði. Ég æfði mikið einn, hægri, vinstri, móttöku, ég fór út að hlaupa með fótbolta og gerði allt. Síðan fékk ég tækifæri til að komast lengra, tækifæri til að komast upp á Skaga og vera innan um stráka sem dreymdi það sama og ég. Þar var ég í góðum félagsskap, við vorum að ýta hvor öðrum lengra og það var smá keppni á milli okkar. Síðan hef ég verið mjög heppinn með fólk í kringum mig sem hefur ráðlagt mér og hjálpað mér að komast lengra.
Íris Er Æisdóttir, 15 ára, Grindavík
Þegar þú varst yngri bjóstu þá við því að fara út, í ensku deildina og komast svona langt í fótboltanum?
Ég var alltaf pottþéttur á að ég myndi ná langt ef ég fengi tækifæri til að fara á staði og spila. Ég hafði alltaf trú á sjálfum mér og mínum hæfileikum til þess að ná langt. Ég er feginn að hafa verið réttur maður á réttum stað í mörgum tilfellum. Þeir ákvarðanir sem ég tók að hafna ákveðnum hlutum og stökkva á hina, það hefur borgað sig. Allar ákvarðanir frá því að ég fer frá ÍA og þangað til ég fer til Bolton hafa gengið upp og ég er ánægður með það.
Friðrik Skúli Reynisson 15 ára.
Hvaða leikmaður Bolton fannst þér hafa sýnt mestu framfarirnar á tímabilinu sem var að ljúka?
Gary Cahill, hann er leikmaður fyrir framtíðina og mun ná langt. Ef hann spilar eitt tímabil í viðbót fyrir okkur þá er það frábært en þessi leikmaður mun spila fyrir Arsenal, United, Leeds eða eitthvað af þessum stóru klúbbum í framtíðinni.
Sigurður Gísli Snorrason 14 ára gamall
Mig langar að spyrja af því hvort að fótbolti út á landi sé með lélegar aðstæður fyrir knattspyrnuiðkun?
Það er erfitt að keppa við öll þessi hús og annað en tíminn er það þéttaskipaður í þessum höllum að oft á tíðum gæti verið betri að vera í leikfimisalnum og æfa tækniatriði. Eina sem þú þarft er bolti og flötur til að gera þessa hluti á og ég held að það sé alls staðar hægt. Það voru engar sérstakar aðstæður þar sem ég ólst upp og það sama á við um leikmenn sem eru úti í dag, þeir voru ekki með neinar svakalegar aðstæður. Það er bara viljinn og metnaður sem á að vera nóg til að drífa fólk áfram. Það á ekki að þurfa hallir, fólk þarf líka aðeins að kynnast vindinum og snjónum til að vita virkilega hvaðan það kom til að meta það hvert það er að fara.
Daniel Örn Sólveigarson 14 ára Mosfellsbær
Hvað finnst þér um Crystal Palace? Þekkiru leikmenn í liðinu? Myndiru spila fyrir þá?
Ég þekki ekki einn einasta leikmann í Crystal Palace. Ef þeir munu einhverntímann fara í úrvalsdeildina eða ef ég þarf á þeim að halda þá mun ég gera það. Næstu fjögur árin mun ég líklega ekki spila fyrir Crystal Palace en maður á aldrei að segja aldrei.
Ertu með gott sjálfstraust og hvernig byggiru það upp?
Rebekka Rún Gunnlaugsdóttir 15 ára
Ég er með mjög gott sjálfstraust. Ef maður er að fara út á fótboltavöll með mörgum góðum leikmönnum þá verður þú að hafa trú á sjálfum þér. Þora að vinna og þora að tapa og gera mistök. Að hafa trú á sjálfum sér fer langt með mann.
Daníel Guðjónsson, 14 ára, Fjarðabyggð.
Nú þegar AZ varð Hollandsmeistari, myndiru frekar verða meistari með þeim heldur en að spila með Bolton?
Nei aldrei. Minn tími var kominn hjá AZ, ég var búinn að spila þarna í tvö og hálft ár og orðinn þetta gamall. Það var vitað mál að AZ yrði meistari einn daginn en ég hafði ekki tíma til að bíða eftir því. Ég missti af því að verða deildarmeistari og bikarmeistari þarna. Það var alltaf vitað mál að þetta myndi gerast en ég vildi frekar fara í ensku deildina en bíða eftir því.
Páll Orri Pálsson 10 ára
Hver er besti vinur þinn í Bolton?
Andy O’Brien.
Erling Gunnarsson 17 ára.
Ég sé ekki neina bætingu hjá Bolton. Þú komst á orði að þú vildir fá fleiri leikmenn til liðsins. En ég sé það ekki gerast og Gary Megson er ekki góður stjóri finnst mér. Mér finnst Bolton vera bara á niðurleið með þennan stjóra og þennan hóp. Hvað finnst þér um þetta er eitthvað til í þessu? og ef það sé eitthvað rétt í þessu munduru vilja þá yfirgefa klúbbinn?
Ég tel ekki rétt að það sé ekki bæting þar sem að við höfum losað okkur við alla þessa gömlu skrögga og leikmenn sem hafa ekki verið að spila. Í staðinn hafa komið ungir og efnilegir leikmenn sem eru framtíðarmenn fyrir næstu ár. Stjórinn hefur haldið okkur uppi í deildinni og það er meira en mörg lið. Lið í kringum okkur hafa verið að eyða hundruðum milljónum punda eins og Newcastle, Sunderland og fleiri, Manchester City er rétt fyrir ofan okkur. Með nokkrum ef og hefði leikjum þá hefðum við getað endað ofar en ég er nokkuð viss um að munum fá 2-3 nýja leikmenn og liðið mun verða sterkara. Ég er mjög ánægður hjá Bolton og trúr mínu félagi þannig að það þarf að vera eitthvað mjög sérstakt til að ég fari frá þeim klúbbi.
Vésteinn Örn Pétursson 10 ára
Ef þú gætir farið til hvaða stórliðs í ensku deildinni sem er, hvaða mundi það vera?
Leeds United.
Sigurjón Hallgrímsson 19 ára
Gætiru hugsað þér að spila undir stjórn hins fríða Ian Dowie?
Ef hann er að stjórna Leeds United á þeim tíma þá er svarið já.
Sigurjón Hallgrímsson 19 ára
Hefurðu skorað þrennu í leik?
Það hefur örugglega verið í yngri flokkunum með KS á einhverju Króksmótinu.
Oliver Sigurjónsson 14.ára
Fórstu oft út í fótbolta aukalega? og ef já, varstu oft þá einn eða varstu bara með vinum þínum?
Ég hef alltaf verið mikill ”loner” og þurfti oft að pína félaga mína í að skipta á milli bíla og fótbolta. Þegar ég varð aðeins eldri var ég mikið einn og ég hef verið einn með mína geðveiki í kringum þetta. Þetta er lífsstíll sem menn velja sér og ég kaus að gera þetta.
Ómar Ellertsson 27 ára
Gætir þú hugsað þér, ef tækifæri gæfist, að spila fyrir erkifjendur Bolton, Manchester United?
Þeir eru stór klúbbur og ef þeir myndu hafa áhuga þá myndi ég hafa áhuga en eins og staðan er í dag efast ég um að þeir hafi áhuga á 27 ára gömlum bakverði þar sem að þeir hafa frábæra leikmenn í sínum herbúðum. Ef Sir Alex hringir þá svara ég.
Andri Þór Valsson 19 ára.
Var að velta fyrir mér hvort þetta hafi verið skot eða fyrirgjöf hjá þér gegn Stoke í fyrstu umferðinni?
Þetta var skot.
Guðgeir Óskar Ómarsson 16 ára
Hver var þín fyrsta hugsun eftir að boltinn fór inn á móti Stoke?
Helvíti var þetta flott hjá mér.
Pálmi Þór Ásbergsson 15 ára
Hvernig líður þér á vellinum?
Mjög vel. Ég hef gaman af að vera inni á vellinum, sérstaklega þegar að mikið fólk er á vellinum. Ég lifi drauminn með því að standa inni á öllum þessum stóru völlum á móti öllum þessum stórum köllum. Ég er oftar en ekki í mínum eigin heimi inn á vellinum og það er rosalega lítið sem er að trufla mig, mér líður bara eins og ég sé í vinnunni að spila fótbolta.
Pálmi Þór Ásbergsson 15 ára
Hvernig undirbýðu þig undir leik?
Ég byrja mjög snemma að undirbúa mig og fer yfir hvernig ég ætla að spila og hvað ég ætla að gera. Fyrir leikinn er ég búinn að skora nokkur mörk, eiga frábærar fyrirgjafir og tækla mótherjann algjörlega. Þetta er hugrænt, að spila leikinn í huga sínum og allir ætlu að gera þetta til að sjá þetta fyrir sér og byggja upp eigið sjálfstraust.
Miralem Haseta
Grétar mig langar að spyrja þig um það hver var erfiðasti mótherji fyrir utan Mark Duffield sem þu lékst á móti?
Þú ert snillingur. Ég var aldrei á móti Mark Duffield nema 5 á móti 5 íþróttasalnum á Siglufirði. Það eru margir frábærir leikmenn eins og Ronaldo og Rooney. Það er hægt að telja marga upp sem eru frábærir og erfitt að spila á móti en Mark Duffield er ekki í þeim hópi.
Daníel Guðjónsson, Fjarðabyggð, 14 ára
Ef þú myndir ráða hvaða liðs þú myndir fara til af eftirtöldum, Barnsley, Derby eða Gillingham, hver af þeim myndi það vera og afhverju?
Derby af því það er stærsti völlurinn og ég þekki hin liðin ekkert það mikið.
Ólafur Gauti Ólafsson 24.ára gamall
Togar það eitthvað í þig að fara í risaklúbb. Helduru að þú eigir möguleika á að komast i eitt af 10 bestu liðum heims og gerast milljarðarmæringur með meiru?
Ég tel mig hafa það sem þarf til að fara langt og tel mig vera góðan í því sem ég geri. Síðan er þetta spurning um að vera á réttum stað á réttum tíma og vera heppinn. Það eru oft utanaðkomandi aðstæður sem verða til þess að leikmenn fá þessu stóru félagaskipti. Þú þarft að vera á réttum stað og á réttu verði til að fara í stóran klúbb. Það er aldrei að vita hvað gerist og ef það gerist þá verður maður að meta það vel hvort að maður sé að fara að spila eða til þess að sitja á bekknum. Ég er ekki að fara eitthvað til að setja á bekknum ég myndi fara til að spila. Fólk talar um milljarðamæringa, ég þarf ekki að vera milljarðamæringur, ég ætla bara að spila fótbolta og njóta þess og sjá hvert ég kemst, ég hef það mjög fínt.
Patrekur Örn Gestsson, 15 ára
Grétar, hver er harðastur í Bolton?
Ég
Stefán Marteinn
Hvað er það Eftirminnilegasta/ Vandræðilegasta atvik sem þu hefur lent í, í
leik?
Þegar maður vinnur þá eru það frábær atvik. Það er eftirminnilegast að skora á móti Brasilíu og fagna en tapa samt 6-1. Mér var alveg sama þá og mér er alveg sama í dag.
Sindri Már Magnússon, 15 ára
Myndiru fara til Liverpool ef þú fengir tilboð frá þeim?
Ef Liverpool hefur samband þá er það frábært og ef það gerist þá gerist það.
Sigurvin Guðmundsson 23 ára
Núna var lið Newcastle Utd í miklu basli í allan vetur og ég man ekki betur en þú að hafir spilað á móti þeim. Fannst þú fyrir því inn á vellinum að það væri lélegur mórall í Newcastle liðinu? Og er Kevin Nolan virkilega ekki betra en þetta?
Þegar við mættum þeim í seinni leiknum þá gekk liðinu ekket rosalega vel. Það var gífurleg pressa á leikmönnum og öllum í kringum þennan klúbb. Þeir vilja kenna um innanbúðarhlutum yfir því hvernig þetta hefur verið. Þeir hafa skipt um marga þjálfara undanfarin ár og ég held að þar liggi hnífurinn í kúnni og þeir geta sjálfum sér um kennt.
Kevin Nolan er mjög góður leikmaður en hefur átt í erfiðleikum með að ná upp á það stig sem hann var einu sinni. Því miður gengu þessi skipti hans til Newcastle ekki upp. Hann er ekki sami leikmaður og þegar hann var að spila með Bolton á sínum tíma og skora tíu mörk á tímabili. Þegar að leikmenn sem hafa verið að skora tíu mörk eru ekki að því þá eru þeir fljótir að gleymast og gagnrýnin fljót að koma á þá.
Brynjar Freyr Garðarsson, 14 ára
Ég spyr þig hvað er betra að vera með meiri reynslu en minni?
Stundum geta ungir og vitlausir afrekað margt en með reynslunni lærir maður betur hvernig á að haga sér við ákveðnar aðstæður og veit hvað er að fara að gerast. Maður lærir að hafa hausinn rétt skrúfaðan á fyrir rétt atvik. Stundum geta ungir strákar sem hafa engu að tapa átt möguleika á að gera frábæra hluti en leikmenn sem eru með meiri reynslu vita kannski betur hvernig á að haga sér og sýna meiri stöðugleika í því sem þeir gera.
Gunnar Karl Haraldsson , 15 ára, Vestmannaeyjar
Hvaða leikmann dreymir þig um til að spila með?
Ég veit það ekki, það eru frábærir leikmenn alls staðar en ég held ekki upp á neinn sérstakan leikmann. Mér er eiginlega alveg sama, meðan ég og fjölskyldan erum ánægð þar sem við erum þá skiptir annað ekki máli.
Ernir Bjarnason 11 ára
Hættirðu einhvern tímann að æfa fótbolta?
Nei, það gerði ég aldrei. Ég var alltaf mjög ákveðinn í því sem ég gerði og foreldrar mínir hefðu líklega lagt mig inn ef ég hefði sagst ætla að hætta í fótbolta því að þá hefðu þau vitað að það væri eitthvað að mér.
Gunnar Máni Arnarson 16 ára
Hvor finnst þér meiri ógn, Steven Gerrard eða C.Ronaldo?
Gerrard er meira úti á vellinum og kemur í seinni bylgjunni að markinu. Ronaldo er nær markinu en þetta eru báðir frábærir leikmenn. Ronaldo er meira sóknarlega og ég hef lent oftar upp á kant við hann en ég get ekki gefið öðrum hvorum atkvæði.
Sverrir Björn
Hver er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur spilað við og hvaða leikmaður fer mest í taugarnar á þér sem þú hefur spilað við?
Rooney og Ronaldo eru mjög góðir, Riera er góður og það eru svo margir góðir að það er erfitt að segja hver er sá besti.
Þeir eru svo margir sem fara í taugarnar á mér. Hemmi Hreiðars, Jason Koumas fer agalega í taugarnar á mér og Ashley Young hann fær 10 atkvæði, hann er óþolandi.
Stefán Marteinn
Hvort er skemmtilegra að leika á kantinum eða Bakverði?
Bakverði, ég tel mig vera mun betri bakvörð heldur en kantmann og ástæðan fyrir því að ég gerðist bakvörður var ég taldi mig geta náð lengra sem bakvörður heldur en miðjumaður, kantmaður eða eitthvað annað.


