Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður Bolton og íslenska landsliðsins, fékk skemmtilega brúðkaupsgjöf um helgina.
Grétar og Manúela Ósk Steinsson giftu sig á laugardaginn en brúðkaupið fór fram á Íslandi.
Þorsteinn Lár Ragnarsson, félagi þeirra hjóna, ákvað að gefa Grétari og Manúelu skemmtilega brúðkaupsgjöf í tilefni dagsins.
Um var að ræða sérsaumaða treyju en helmingurinn af henni var Bolton treyja. Framan á treyjunni var helmingurinn síðan KS treyja þar sem að það er uppeldisfélag Grétars.
Aftan á treyjunni var síðan helmingurinn KR treyja þar sem að Manúela Ósk er KR-ingur en hér til hliðar má sjá mynd af treyjunni.


