Fyrir hverja umferð í Pepsi-deild karla í sumar ætlar Fótbolti.net að fá sérfræðing til að spá í spilin. Sérfræðingurinn fær einnig að tippa á leikina á Lengjunni en Íslenskar Getraunir leggja til 2000 krónur og ef sérfræðingurinn fær vinning mun sá vinningur renna til góðgerðarmála.
Tómas Ingi Tómasson tippaði á leikina í síðustu umferð en hann hafði einungis tvo leiki af fimm rétta.
Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður Coventry og íslenska landsliðsins, tippar á leikina að þessu sinni en hann tippaði rétt á leik Fylkis og ÍBV í gær. Hér að neðan má sjá síðan sjá spá hans fyrir leiki kvöldsins.
Leikirnir á Lengjunni:
Fylkir - ÍBV 1
Breiðablik - Fjölnir 1
Stjarnan - KR 1
Valur - FH 2
Stjarnan 2 - 1 KR
Þetta verður skemmtilegur leikur. KR-ingar hafa verið að spila vel en Stjarnan er á góðri siglingu og ég spái Stjörnusigri.
Breiðablik 1 - 0 Fjölnir
Fjölnismenn hafa ekki verið að spila vel upp á síðkastið og þetta fer 1-0 fyrir Breiðablik. Alfreð Finnbogason skorar gegn sínum gömlu félögum.
Valur 1 - 2 FH
FH-ingar hafa unnið níunda leikinn í röð og ég held að þeir bregði ekki út af vananum og vinni 2-1 eftir að Valur kemst í 1-0.



