Heimild: Sky
Hoffenheim hefur keypt króatíska varnarmanninn Josip Simunic frá Herthu Berlin á sjö milljónir evra.
Sumunic, sem er 31 árs gamall, var ekki í náðinni hjá Lucien Favre þjálfari Herthu og núna hefur hann skipt um félag.
Simunic á 70 landsleiki að baki fyrir Króatíu en hann hefur leikið í þýsku Bundesligunni undanfarin tólf ár með Herthu og Hamburg.
Hann mun án efa styrkja Hoffenheim en liðið vakti mikla athygli á sínu fyrsta tímabili í Bundesligunni.
Hoffenheim var lengi vel á toppi deildarinnar en eftir áramót fataðist liðinu flugið og endaði um miðja deild.



