Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Í dag er komið að því að kíkja á stemniguna hjá KV sem leikur í 3.deild. Páll Kristjánsson þjálfari liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemningin hjá KV þessa dagana?
Stemmingin er bara virkilega góð hjá okkur. Við höfum farið vel af stað og það skiptir miklu máli. Strákarnir eru að mæta vel á æfingar og allir staðráðnir í að ná sem lengst í sumar. Þegar vel gengur þá er allt miklu auðveldara en síðustu tvö ár hefur verið mikill uppgangur í þessu hjá okkur og stemmningin magnast í takt við það. Við erum farnir að fá meiri athygli og ég er ekki frá því að forráðarmenn KR séu farnir að fylgjast betur með okkur. Veit ekki hvort strákarnir hjá okkur eigi mikla möguleika á að komast að hjá KR enda flestir uppaldir í KR;)
Er stuðningurinn við liðið góður?
Við eigum dygga stuðningsmenn sem mæta á alla okkar leiki hvort sem heima eða að heiman. Vissulega dettur mætingin af og til niður og þá sérstaklega á móti minni liðinum en í góðu veðri á góðum leik eru áhorfendur fjölmargir. Þá erum við með gríðarstóran hóp leikmanna og þegar strákarnir eru ekki í hóp þá eru þeir duglegir að koma og styðja við liðið.
Hvað varðar fjárhagslegan stuðnings þá er það bara eins og gengur og gerist. Við erum alltaf að leita að styrktaraðilum til þess að hjálpa okkur en það gengur misvel enda ástandið erfitt. En við erum í góðum málum enda skynsamir þegar kemur að fjármálunum.
Er liðið í miklu samstarfi við KR?
Samstarfið er mjög einfalt. Við höfum tekið að okkur dómgæslu hjá vissum yngri flokkum og í staðinn fáum við alla þá aðstöðu sem við þurfum. Samstarfið er mjög gott og hefur gengið vel í 5 ár. Þá er í liðinu að finna harða stuðningsmenn KR liðsins, þjálfara, dómara, project managera og aðra sjálfboðaliða. Þá höfum við fengið leikmenn að láni frá KR í gegnum tíðina og erum með einn slíkan í dag, Björn Ívar Björnsson. Það eru miklir möguleikar á auknu samstarfi og til að mynda ef við förum upp þá er kominn frekari grundvöllur til þess að lána leikmenn yfir.
Svo má eiginlega segja að við séum hálfgert athvarf fyrir KR-inga enda tækifæri þeirra af skornum skammti hjá KR og allir eru þeir guðvelkomnir til okkar.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Ég er mjög sáttur með stöðu liðsins í dag. Við töpuðum reyndar fyrsta leiknum en höfum unnið alla leikina í deildinni síðan. Hefði viljað fá meira út úr fyrsta leiknum en við vorum ekkert að dvelja við það og höfum verið sterkir og unnið alla okkar leiki síðan þá nokkuð sannfærandi. Það hefur reyndar verið mikið brölt á leikmannahópnum, lykilmenn verið að fara til útlanda og eitthvað um meiðsli en núna er útlit fyrir það að hópurinn sé orðinn endanlegur og maður hefur því úr stórum hópi að velja. Það getur verið ansi mikill hausverkur að velja þessa 16 sem eiga að vera í hóp hverju sinni og menn utan hóps hjá okkur sem ég fullyrði að kæmust í byrjunarliðið hjá öllum liðum í 3. deild.
Þið töpuðuð naumlega fyrir Reyni Sandgerði í 2.umferð VISA-bikarsins. Voru það ekki gríðarleg vonbrigði?
Úslit leiksins voru okkur mikil vonbrigði því við ætluðum okkur að komast langt í bikarnum. Við vorum síst lakari aðilinn í leiknum og fengum færinn til þess að klára leikinn. En þetta féll ekki með okkur. En þetta var alvöru leikur og Reynismenn þurftu að hafa virkilega fyrir þessu. Það má heldur ekki líta fram hjá því að Reynismenn eru í efsta sæti í annarri deildinni og ég held að við höfum sýnt það í þessum leik að við eigum fullt erindi í þá deild.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Það er fyrst og fremst stór og jafn hópur. Það skiptir eiginlega engu hvern vantar því alltaf kemur svipaður leikmaður að getu inn. Þá höfum við mikla trú á okkur og okkur finnst við vera bestir. Klórum okkur stundum í kollinum hvernig við fórum að því að tapa stigum fyrir hinu og þessu liði. En það er líka okkar veikleiki. Við höldum stundum að leikurinn verði léttur en annað kemur svo á daginn.
Hver eru markmið ykkar fyrir sumarið?
Við ætlum okkur að gera betur en í fyrra. Þá enduðum við í öðru sæti í riðlinum og þriðja sæti í deildinni. Við viljum klára þenna riðil og svo ná sem lengst í úrslitakeppninni. Án þess að það sé eitthvað yfirlýst markmið okkar þá held ég að allir í leikmannahópi okkar stefni upp um deild. Við viljum að sjálfsögðu vinna alla leiki og það er markmiðið. Fram til þess hefur okkur einnig gengið bölvanlega að leika á grasi en við höfum snúið því við á þessu ári og erum orðnir alveg ágætist graslið. Erum allavega búnir að jarða þá grýlu og það var eitt af okkar markmiðum. Þá ætluðum við okkur að vinna Berserki og það tókst í síðasta leik. Það var ljúft enda hafa þeir reynst okkur erfiðir. En þeir eru skemmtilegir andstæðingar og alltaf gaman að spila við þá.
Hvað hefur komið þér mest á óvart í byrjun deildarinnar?
Maður fylgist best með manns eigin riðli. Það hefur komið mér á óvart hveru jöfn liðin eru. Vissulega hafa KFK farið illa af stað og þetta hefur verið erfitt hjá þeim en í leikjum hinna liðanna þá er ómögulegt að spá fyrir um úrslit leikja. Þetta hefur þó fallið ágætlega fyrir okkur og við vonum að það haldi þannig áfram.
Hvaða lið telur þú að séu sigurstranglegust í 3.deildinni í sumar?
Ég hef bullandi trú á okkur og þá eru Berserkir með flott lið, allavega þegar þeir spila á móti okkur. Maður þekki lítið til hinna riðlanna. Völsungur hefur farið vel af stað og það má búast við því að þeir fari langt. Eins hefur Ýmir byrjað vel og það sama má segja um KFS. KFS er með erfiðan heimavöll sem gæti reynst þeim vel í úrslitakeppninni. En ég ætla að spá okkur sigri.
Eitthvað að að lokum?
Bara þakka fyrir mig og þakka fótbolta.net fyrir flotta umfjöllun (gera það ekki allir;). Svo hvet ég Vesturbæinga til þess að fjölmenna á leiki KV. Ef menn vilja sjá KR-inga spila þá eiga þeir að kíkja á leiki hjá okkur.
Eldra úr liðnum "Hvað er að frétta?"
1.deild:
Fjarðabyggð (10.júní)
ÍR (29.maí)
KA (15.maí)
Leiknir R. (29.maí)
Víkingur Ólafsvík (26.mars)
Þór (15.maí)
2.deild:
BÍ/Bolungarvík (29.apríl)
Grótta (16.júní)
Hamar (21.apríl)
Hvöt (24.júní)
ÍH/HV (17.apríl)
Reynir Sandgerði (3.apríl)
Víðir Garði (21.maí)
3.deild:
Álftanes (17.júní)
Árborg (14.maí)
Berserkir (1.maí)
Draupnir (25.mars)
Einherji (16.apríl)
Huginn (29.maí)
KB (11.júní)
KFG (10.júní)
KFK (20.maí)
KFR (31.mars)
KFS (30.apríl)
Leiknir Fáskrúðsfirði (12.júní)
Léttir (8.maí)
Skallagrímur (11.júní)
Þróttur Vogum (27.júní)




