Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 30. júní 2009 22:46
Alexander Freyr Tamimi
Umfjöllun: Stjarnan í bullandi toppbaráttu eftir sigur á KR
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fagnar fjórða marki Stjörnunnar.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fagnar fjórða marki Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnhildur Yrsa skorar markið.
Gunnhildur Yrsa skorar markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrefna Huld Jóhannesdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir eigast við.
Hrefna Huld Jóhannesdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir eigast við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Boltinn skallaður af svo miklu afli að hann beygist vel inn.
Boltinn skallaður af svo miklu afli að hann beygist vel inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan fagnar fjórða markinu fyrir framan stuðningsmenn liðsins. Hrefna Huld fylgist með niðurlút.
Stjarnan fagnar fjórða markinu fyrir framan stuðningsmenn liðsins. Hrefna Huld fylgist með niðurlút.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 1 – 4 Stjarnan
0-1 Björk Gunnarsdóttir (´16)
1-1 Katrín Ómarsdóttir (´20)
1-2 Guðríður Hannesdóttir (´42)
1-3 Eyrún Guðmundsdóttir (´55)
1-4 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (´70)

Það mátti búast við hörkuleik í Vesturbænum þegar KR fékk Stjörnuna í heimsókn í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. KR-ingar höfðu verið í talsverðu basli á tímabilinu og sátu þær fyrir leikinn í 6. sæti deildarinnar með 10 stig. Stjarnan var aftur á móti í 3. sæti deildarinnar með 20 stig og gátu þær jafnað topplið Vals og Breiðabliks með sigri.

Fyrri leik liðanna á tímabilinu lauk með 1-0 sigri Stjörnunnar í rokinu í Garðabænum en þar var það Karen Sturludóttir sem skoraði mark Garðbæinganna.

KR-stúlkur byrjuðu leikinn í kvöld betur og voru meira ógnandi fram á við fyrstu mínúturnar án þess þó að skapa sér nein afgerandi færi. Stjörnustúlkur unnu sig þó smám saman inn í leikinn og eftir rúman stundarfjórðung kom Björk Gunnarsdóttir þeim yfir eftir frábæra stungusendingu frá Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur.

Björk komst þá ein í gegn og keyrði fram og kláraði færið á yfirvegandi máta framhjá Írisi Dögg í marki KR. Vel gert hjá Stjörnunni og þær komnar yfir.

Heimastúlkur voru þó ekki lengi að jafna metin með svipuðu marki og kom Stjörnunni yfir þegar Fjóla Dröfn Friðriksdóttir vann boltann af Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur og renndi honum inn fyrir vörn Stjörnunnar þar sem Katrín Ómarsdóttir kom á spretti. Hún var komin ein gegn Söndru í markinu og kláraði færið yfirvegað í fjærhornið.

Stjörnustúlkur sóttu aftur í sig veðrið eftir jöfnunarmarkið og áttu tvö ágætis færi með stuttu millibili en þau fóru bæði forgörðum. Þegar tæpur hálftími var liðinn munaði engu að Björk hefði skorað sitt annað mark eftir misskilning í vörn KR en Íris greip vel inn í.

Björk var aftur á ferðinni skömmu síðar þegar hún skaut naumlega framhjá markinu eftir að hafa fengið langa sendingu inn í og var sóknarþungi gestanna nú orðinn töluverður. Krafturinn virtist þó aðeins fara úr þeim eftir þessa syrpu.

Þeim tókst þó að skora mögulega ótrúlegasta mark tímabilsins til þessa þegar Guðríður Hannesdóttir kom knettinum í netið nánast frá miðju. Það virtist þá sem hún væri að gefa enn eina langa sendingu Stjörnunnar fram en boltinn skoppaði svo yfir Írisi markvörð sem var staðsett mjög framarlega og í markið. Stófurðulegt mark en Stjarnan aftur komin yfir. Skömmu síðar var flautað til leikhlés.

Seinni hálfleikurinn byrjaði á rólegu nótunum en á 53. mínútu komst Björk Gunnarsdóttir ein í gegn en skot hennar endaði í þverslánni. Skömmu síðar kom Eyrún Guðmundsdóttir Stjörnunni í 3-1 með öðru sérstöku en góðu marki. Hún tók þá aukaspyrnu frá hægri kantinum af rúmlega 30 metra færi og sigldi hún yfir allt og alla í vítateig KR og endaði í netinu. Klaufalegt hjá KR en að sama skapi mjög vel gert hjá Eyrúnu.

KR-ingar komust í ágætis færi þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleiknum en fyrst tókst Söndru að verja vel og síðan fór boltinn af varnarmanni í horn.

Skömmu síðar hefði Stjarnan nánast getað gert út um leikinn þegar Inga Birna Friðjónsdóttir náði frábærri sendingu fyrir á Björk Gunnarsdóttur. Björk hafði nægan tíma til að athafna sig inni í teig en skot hennar fór framhjá.

Stjarnan skoraði sitt fjórða mark þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum en þar var á ferð Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir með góðum skalla eftir hornspyrnu frá Ásgerði. Stjarnan komin í mjög góða stöðu og þurfti eitthvað mikið að gerast til að þær tækju ekki stigin þrjú með sér heim í Garðabæinn.

Skömmu eftir markið var Hrefna Huld Jóhannesdóttir komin ein í gegn en það var flaggað vegna rangstöðu. Hrefna brást illa við því og þrumaði boltanum í burtu og uppskar fyrir það gult spjald. Greinilegt að hún var orðin eitthvað pirruð á því að vera 4-1 undir gegn sínum gömlu félögum.

Stjörnustúlkur héldu áfram og hefðu þær mögulega getað bætt við mörkum. KR stúlkur virtust þó ekki vera líklegar til að minnka muninn og fór það svo að fleiri mörkum var ekki bætt við og voru lokatölur því 4-1 fyrir Stjörnunni.

Stjarnan er nú jöfn Val og Breiðablik á toppi deildarinnar með 23 stig en þær eru þó með sístu markatöluna. KR er enn í 6. sætinu með 10 stig, jafn mörg og Afturelding/Fjölnir í 7. sætinu. Ljóst er að mikil spenna er í deildinni í ár og verður mjög gaman að fylgjast með því hvernig toppbaráttan þróast.

Byrjunarlið KR: Íris Dögg Gunnarsdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir (83. Guðrún Ólöf Olsen), Guðný Guðleif Einarsdóttir (65. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir), Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir, Hrefna Huld Jóhannesdóttir, Katrín Ómarsdóttir, Íris Dögg Gunnarsdóttir, Mist Edvardsdóttir, Kristín Sverrisdóttir, Ólöf Gerður Jónsdóttir Ísberg, Rebekka Sverrisdóttir.

Stjarnan: Sandra Sigurðardóttir, Björk Gunnarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (83. Íris Ósk Valmundsdóttir), Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Inga Birna Friðjónsdóttir (74. Karen Sturludóttir), Edda María Birgisdóttir (71. Helga Franklínsdóttir), Anna Björk Kristjánsdóttir, Guðríður Hannesdóttir, Eyrún Guðmundsdóttir.

Gul spjöld: Hrefna Huld Jóhannesdóttir (KR)
Maður leiksins: Björk Gunnarsdóttir.
Slapp
banner