Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 30. júní 2009 22:09
Davíð Örn Atlason
Kaka: Ótrúlegur og ógleymanlegur dagur
Stórstjarnan Kaka sem gekk nýverið í raðir Real Madrid frá AC Milan hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem leikmaður félagsins í dag.

,,Milan opnuðu fyrst dyrnar fyrir samningaviðræðum. Það var í janúarmánuði," sagði Kaka.

,,Eftir tímabilið þá sögðu þeir við mig að það væru einhver tilboð og þeir höfðu byrjað á því að semja við félögin um verð. Ég sagði þeim síðan að ég væri til í að fara til Real Madrid."

Kaka, sem mun leika í treyju númer 8 var kynntur sem leikmaður Real Madrid í dag á Santiago Bernabeu leikvanginum í dag.

,,Þetta var ótrúlegur og ógleymanlegur dagur - ekki bara í mínu lífi heldur líka í lífi annars fólks. Þetta var sögulegt fyrir mig."

,,Ég valdi Madrid af því að þegar ég tala við félaga mína í landsliðinu þá tala þeir alltaf við mig um Real Madrid. Ég fékk upplýsingarnar sem ég þurfti og ég ákvað að ef ég myndi einhverntímann fara frá Milan þá myndi ég spila fyrir Real. Nú er þetta orðið að veruleika."
Slapp
banner
banner