Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 11:15
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Kaka: Verða forréttindi að spila með Ronaldo
Kaka var kynntur sem leikmaður Real Madrid í gær en hann er nýgenginn til liðs við félagið frá AC Milan. Cristiano Ronaldo er einnig á leið til Real frá Manchester United og segir Kaka að engin vandamál verði á milli þeirra. Kaka segir að það verði forréttindi að fá að spila með Ronaldo.

,,Það verða algjör forréttindi að spila með Ronaldo, það verður enginn rígur á milli okkar," sagði Kaka.

Kaka skrifaði undir sex ára samning hjá Real og hann er staðráðinn í því að standa sig vel hjá félaginu.

,,Dagurinn í dag (gærdagurinn) er mjög sérstakur dagur fyrir mig. Ég er mjög ánægður á þessu stigi ferilsins."

,,Ég óska þess að geta skrifað nafn mitt í sögubækur félagsins - þetta félag hefur afrekað svo mikið í gegnum tíðina."
Slapp
banner
banner