Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Edin Dzeko ætlar að vera áfram í herbúðum Wolfsburg
Edin Dzeko leikmaður Þýskalandsmeistara Wolfsburg ætlar að vera áfram hjá félaginu á næsta tímabili.

Dzeko sem varð markahæsti leikmaður þýsku Bundesligunnar á síðasta tímabili hefur verið orðaður við lið á borð við AC Milan, en Dzeko ætlar að vera áfram hjá Wolfsburg.

,,Ég vil vera í titilbaráttunni aftur og ég hlakka gríðarlega til þess að spila í Meistaradeildinni," sagði Dzeko við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Mér líður mjög vel hjá Wolfsburg og ég mun gefa allt sem ég get fyrir félagið á næsta tímabili."
Slapp
banner
banner