Kristrún Lilja Daðadóttir annar þjálfara KR var hundfúl með sínar stúlkur eftir 4-1 tap gegn Stjörnunni í Frostaskjólinu í kvöld. Hún var mjög ósátt við andleysið í sínu liði eftir að þær lentu undir á nýjan leik en eftir að Stjarnan komst í 2-1 var ekki aftur snúið.
„Ég er alveg hrikalega svekkt eftir þetta. Þetta var bara niðurlæging, ekkert annað. Fyrri hálfleikurinn var hægur og við fáum svo slysalegt mark á okkur í stöðunni 1-1 og við vorum staðráðnar í því að bæta bara fyrir það í seinni hálfleik."
,,En ég veit ekki hvað gerist í seinni hálfleik, það var bara algert andleysi og það að það sé ekki meiri karakter í liðinu en þetta þegar á móti blæs finnst mér bara hrikalega lélegt,“ sagði Kristrún eftir leikinn við Fótbolti.net.
„Það eina sem þær (Stjarnan) gerðu var að stinga boltanum fram og hlaupa og það skilaði þeim auðvitað þessum mörkum, með smá heppni líka. En betra liðið vann.“
„Annað markið sló okkur hrikalega út af laginu. Þetta eru náttúrulega sjaldséð mistök, Íris er búin að spila snilldar vel í allt sumar og svona gerist bara einu sinni hjá henni, þá er það bara búið. Ég er samt bara óánægð með það sem gerist hjá leikmönnunum inni á vellinum þegar tvö svona óheppileg mörk koma.“
„Við höfum engar afsakanir, við verðum bara að líta í eigin barm og gera betur næst.“




