Heimild: Sporting Life
Manchester City hafa selt meira en 30.000 ársmiða fyrir næsta tímabil þrátt fyrir að átta vikur séu þangað til að tímabilið hefst.
Mark Hughes knattspyrnustjóri City hefur styrkt félagið til muna og þeir Roque Santa Cruz og Gareth Barry eru komnir til félagsins.
Yfirtaka Abu Dhabi United Group skiptir miklu í þessum félagsskiptum þar sem peningar eru ekki vandamál hjá City eftir yfirtöku þeirra.
,,Við höfum alltaf vitað að aðdáendur City séu ástríðufullir og styðja vel við bakið á félaginu," sagði Carry Cook framkvæmdastjóri félagsins.
,,Salan á ársmiðum er mjög gott dæmi um það," bætti Cook við en Manchester City taka á móti Wolves í fyrsta leik tímabilsins þann 22. ágúst næstkomandi.


