„Ég er mjög ánægð, 4-1 í Vesturbænum. Þetta er talsvert erfiður útivöllur og þetta er bara glæsilegt. Við liggjum í færum hérna og við hefðum jafnvel getað skorað fleiri mörk en við fengum talsvert af rangstöðum. En þetta var bara flottur leikur,“ sagði Björk Gunnarsdóttir leikmaður Stjörnunnar og einn markaskorara þeirra við Fótbolti.net eftir 4-1 sigur liðsins gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
„Við vorum fastar fyrir og fylgdum eftir boltum. Við erum að klára í boxinu og þetta er bara fínn leikur hjá okkur.“
„ Við ákváðum taktík og fylgdum henni eftir og það gekk upp. En þetta var mjög erfiður leikur, ég get nú ekki sagt annað en það. Þær (KR) eru góðar og í rauninni ekkert hægt að taka af þeim. En við vorum bara grimmari og við vildum þetta meira en þær í dag.“
María Björg Ágústsdóttir markvörður Vals sagði eftir leik liðsins gegn Breiðablik í gær að hún teldi að toppbaráttan væri á milli þeirra tveggja en Stjarnan er nú með jafn mörg stig þegar tíu umferðir eru búnar. Björk gefur ekki mikið fyrir þessi orð og segir Stjörnustúlkur alveg vera með í baráttunni.
„Engin spurning, fólk má segja það sem það vill. Ég er bara fegin að enginn hefur trú á okkur. Við vitum hvað við þurfum að gera hérna og við höfum trú á þessu og við ætlum alla leið. Blikar og Valur eru vanari að vera þarna ofarlega heldur en við seinustu árin en við erum komnar til að vera og erum tilbúin í þennan slag, hvern einasta leik. Við getum unnið hvaða lið sem er en við getum tapað gegn hvaða liði sem er eins og hefur sést.“


