Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 30. júní 2009 23:46
Mist Rúnarsdóttir
Umfjöllun: Þægilegur sigur Þórs/KA í Breiðholtinu
Kvenaboltinn
Maður leiksins, Arna Sif Ásgrímsdóttir fær takka í andlitið.
Maður leiksins, Arna Sif Ásgrímsdóttir fær takka í andlitið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrátt fyrir að línuvörðurinn hafi bent dómara á leikbrotið að ofan ákvað Viðar Helgason dómari að dæma dómarakast.
Þrátt fyrir að línuvörðurinn hafi bent dómara á leikbrotið að ofan ákvað Viðar Helgason dómari að dæma dómarakast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Takkarnir aftur hátt á lofti.
Takkarnir aftur hátt á lofti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mateja Zver með boltann í kvöld.
Mateja Zver með boltann í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 0-4 Þór/KA
0-1 Rakel Hönnudóttir (‘4)
0-2 Vesna Smiljkovic (’33)
0-3 Mateja Zver (’60)
0-4 Mateja Zver (’61)

ÍR-ingar tóku á móti Þór/KA í Breiðholtinu í kvöld. Fyrir leikinn áttu sjálfsagt flestir von á öruggum sigri gestanna og sú varð raunin.

Þór/KA fékk óskabyrjun því þær náðu forystunni strax á fjórðu mínútu. Þá skoraði fyrirliðinn Rakel Hönnudóttir með föstum skalla eftir hornspyrnu frá Vesnu Smiljkovic.

Litlu munaði að Bryndís Jóhannesdóttir næði að jafna metin skömmu síðar en gott skot hennar fór naumlega framhjá.

Stúlkurnar að norðan juku forystu sína á 33 mínútu en þá átti Arna Sif Ásgrímsdóttir laglega sendingu á Vesnu sem tók við boltanum og afgreiddi hann örugglega í markið.

ÍR-ingar fengu kjörið tækifæri til að rétta úr kútnum á 40 mínútu þegar þær fengu dæma aukaspyrnu á vítateigslínu Þórs/KA. Aleksandra Mladenovic fór hinsvegar ill að ráði sínu og þrumaði boltanum hátt yfir markið.

Gestirnir áttu svo síðasta færi fyrri hálfleiksins en þá átti Rakel Hönnudóttir glæsilegan sprett upp vinstri vænginn, lagði boltann út í skot á Vesnu sem þrumaði í slánna og út. Þar sluppu ÍR-ingar með skrekkinn og staðan var 2-0 fyrir gestunum er Viðar Helgason dómari flautaði til leikhlés.

Það voru ÍR-ingar sem hófu síðari hálfleikinn betur og komu sér strax í gott færi. Margrét Sveinsdóttir prjónaði sig laglega í gegnum vörnina hjá Þór/KA en varnarmenn náðu að bægja hættunni frá á síðustu stundu. ÍR fékk í kjölfarið hornspyrnu en svo fór að Berglind Magnúsdóttir markvörður handsamaði boltann eftir mikinn atgang í teignum þar sem að varnarmenn Þórs/KA höfðu bjargað á línu frá Joönu Paváo.

Hinum megin á vellinum komst Elva Marý Friðjónsdóttir ein gegn Micaelu Crowley markverði en sú síðarnefnda varði vel. Crowley gat hinsvegar lítið gert á 60 mínútu þegar Mateja Zver fékk háa sendingu inn fyrir ÍR-vörnina og setti boltann örugglega í markið.

Zver var aftur á ferðinni mínútu síðar en í þetta skiptið skoraði hún eftir góðan undirbúning Vesnu Smiljkovic.

Eftir þetta tók leikurinn að róast og virtist sem að bæði lið hefðu sætt sig við stöðuna. Þó nokkuð var um óþarfa pirringsbrot eins og peysutog og bakhrindingar hjá báðum liðum en dómari leiksins, Viðar Helgason, stóð vaktina vel.

Á lokamínútum leiksins fékk Þór/KA tvö fín færi. Fyrst átti Rakel Hönnudóttir fínan skalla rétt framhjá eftir fyrirgjöf frá Zver og í seinna skallaði Arna Sif Ásgrímsdóttir naumlega framhjá eftir hornspyrnu.

Fleiri mörk voru þó ekki skoruð og niðurstaðan öruggur sigur gestanna að norðan. Bæði lið hafa leikið betur en í dag en á köflum var fínn fótbolti í gangi. Arna Sif Ásgrímsdóttir var mjög öflug á miðjunni hjá Þór/KA í dag og þá voru sóknarmennirnir Vesna, Mateja Zver og Rakel Hönnudóttir hættulegar. Hjá ÍR voru Ásgerður Arna Pálsdóttir og Úlfhildur Ösp Indriðadóttir duglegar sem og baráttuhundurinn Bryndís Jóhannesdóttir sem barðist af krafti allan leikinn.

Eftir leiki kvöldsins situr Þór/KA enn í fjórða sæti deildarinnar en er nú með 19 stig, 4 stigum á eftir toppliðunum þremur. Mótið er aðeins rétt rúmlega hálfnað og því er ljóst að ýmislegt getur enn gerst og stúlkurnar að norðan eru til alls líklegar ef þær spila eins og þær best geta.

ÍR-ingar eiga erfiða baráttu framundan en liðið situr í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar. Það eru þó aðeins 4 stig í lið GRV sem situr í 8.sæti og baráttan á botninum er því galopin eins og toppbaráttan.

Lið ÍR: Micaela L. Crowley (m), Ásgerður Arna Pálsdóttir (f), Margrét Sveinsdóttir (Sigríður Guðnadóttir ’71), Joana Rita Nunes Paváo, Helga Dagný Bjarnadóttir, Bryndís Jóhannesdóttir, Liliana Maria Pereira Martins, Úlfhildur Ösp Indriðadóttir (Brynja Rós Ólafsdóttir ’73), Ana Rita Moreira Carneiro, Constanza Cano Diaz, Aleksandra Mladenovic.

Lið Þórs/KA: Berglind Magnúsdóttir (m), Silvía Rán Sigurðardóttir, Karen Nóadóttir (Elva Marý Baldursdóttir ’34), Inga Dís Júlíusdóttir, Vesna Smiljkovic (Eva Björk Benediktsdóttir ’65), Rakel Hönnudóttir, Mateja Zver, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Bojana Besic, Elva Friðjónsdóttir (Sonja Geirsdóttir ’73).

Maður leiksins: Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA
Dómari: Viðar Helgason
Aðstoðardómarar: Rúnar Sigurðsson og Haukur Erlingsson
Slapp
banner
banner