Heimild: BBC
Roberto Di Matteo hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri West Bromwich Albion.
Di Matteo, sem er fyrrum leikmaður Chelsea, náði fínum árangri sem stjóri MK Dons á síðasta tímabilinu en hann kom liðinu í umspilsleiki um sæti í Championship deildinni.
Tony Mowbray hætti hjá WBA á dögunum en hann tók við liði Celtic í Skotlandi.
Forráðamenn WBA reyndu að fá Alan Irvine, stjóra Preston, til að taka við stjórastöðunni en hann hafnaði og ákvað að vera áfram hjá síðarnefnda félaginu.
Di Matteo hefur núna verið ráðinn og Eddie Newton sem var aðstoðarstjóri MK Dons mun fylgja honum til WBA.


