Þorkell Máni Pétursson þjálfari Stjörnunnar var skiljanlega í skýjunum eftir 4-1 sigur sinna stúlkna á KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld og var hann sérstaklega ánægður með seinni hálfleikinn.
„Seinni hálfleikurinn var þannig að við vorum bara miklu betri, en í fyrri hálfleik þá var þetta svona meira í járnum. Ég var náttúrulega brjálæðislega stressaður í stöðunni 2-1, það væri mjög óeðlilegt ef ég væri það ekki. Við vorum að spila á laugardaginn síðast en KR-ingarnir eru búnir að vera í fríi og ég var alveg með nokkra leikmenn tæpa og ég var alveg „tense“ yfir því. En mér fannst við kála þessu í seinni hálfleik, alveg frá upphafi til enda,“ sagði Máni þegar Fótbolti.net náði tali af honum eftir leikinn.
Leikjaprógrammið hjá Stjörnunni er gríðarlega þétt í augnablikinu og er því alltaf hætta á meiðslum þar sem breiddin í liðinu er ekki mjög mikil Máni er þó bjartsýnn og telur að stemningin í liðinu muni fleyta þeim langa leið.
„Við eigum tvo leiki núna og getum auðvitað lent á úthaldsvegg en ég held að karakterinn og stemningin eigi vonandi eftir að fleyta okkur langt. Ég held að það hafi enginn getað búist við því að við værum með 23 stig eftir 10 leiki og værum búnir að fá fleiri stig heldur en í fyrra. Stemningin er bara alla leið, alveg frá stuðningsmönnunum og yfir í meistaraflokksráðið. Það er frábært fólk að vinna hérna í kringum Stjörnuna og það hefur allt gaman af þeim árangri sem við erum að ná,“ hélt hann áfram.
Hrefna Huld Jóhannesdóttir gekk aftur til liðs við KR frá Stjörnunni eftir stutt stopp í Garðabænum og ræddi hún um að umgjörðin hjá liðinu hefði einfaldlega ekki verið sambærileg því sem hún hafði kynnst í Vesturbænum. Nú hefur Stjarnan aftur á móti unnið báða leikina gegn KR á tímabilinu en Máni segir það þó ekki hafa gefið þeim neitt aukanlega. Fór hann mjög fögrum orðum um Hrefnu.
„Það skiptir okkur engu máli. Hrefna kom og hún skildi meira eftir en margur heldur. Hún er bara sigurvegari í íþróttum og það sést á öllum hennar ferli, markaskorun og öðru. Hún er útsjónarsamur og góður leikmaður og ég held að menn megi ekkert vera að missa sig yfir þessum félagsskiptum. Svona gerist bara, það er mikilvægt að leikmanni líði vel hjá félaginu okkar og í því félagi sem þeir eru að spila og það var svarti punkturinn. En hún er góð stelpa og við óskum henni góðs gengis á móti öllum liðum nema okkur,“ sagði Þorkell Máni Pétursson þjálfari Stjörnunnar við Fótbolti.net að lokum.




