Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Darius Vassell í viðræðum við tyrkneskt félag
Darius Vassell, framherji Manchester City, er farinn til Tyrklands þar sem hann mun ræða við forráðamenn Ankaragucu.

Vassell, sem er 29 ára, á enga framtíð fyrir sér hjá City þar sem að Mark Hughes hefur verið duglegur að styrkja framlínuna.

Craig Bellamy og Robinho komu til City á síðasta tímabili, Roque Santa Cruz kom í sumar og þá eru Samuel Eto´o og Carlos Teves orðaðir við félagið.

Vassell kom til City frá Aston Villa árið 2005 en þessi fyrrum enski landsliðsmaður er núna að skoða aðstæður í Tyrklandi.

,,Ég vona að við getum fengið hann í hópinn okkar," sagði Cengiz Topel Yildirim formaður Ankaragucu.
Slapp
banner
banner
banner