Ásgerður Arna Pálsdóttir, fyrirliði ÍR, var að vonum svekkt eftir 4-0 tap gegn Þór/KA. Fótbolti.net tók Ágerði tali að leik loknum og spurði hana út í leikinn.
„Við ætluðum okkur auðvitað sigur, maður vill alltaf sigur er það ekki?“ sagði Ásgerður aðspurð um það hvaða markmið ÍR-liðið hefði sett sér fyrir leikinn. „Við ætluðum allavegana að berjast vel og láta finna fyrir okkur. Það var ekki séns að þetta myndi fara eins og síðast “, bætti Ásgerður við og var þá að vísa til fyrri leiks liðanna sem að Þór/KA sigraði með ellefu mörkum gegn engu.
Lið ÍR byrjaði deildina ekki vel en hefur verið að bæta leik sinn. Liðið hefur þó ekki sýnt mikinn stöðugleika og leikur þess hefur oft á tíðum verið sveiflukenndur. Við spurðum Ásgerði um ástæðuna fyrir þessu.
„Við fengum marga leikmenn bara rétt fyrir tímabilið og það hefur tekið okkur smá tíma að venjast hvorri annarri og spila eins og lið. Það er allt að koma núna og mér finnst við vera að taka framförum í hverjum leik. Dagsformið hefur verið misjafnt en mér finnst þetta vera á réttri leið,“ sagði Ásgerður að lokum við Fótbolta.net




