Framherjinn knái, Mateja Zver, átti góðan leik fyrir Þór/KA og skoraði tvívegis í 4-0 sigri liðsins á ÍR. Fótbolti.net spjallaði við Mateju eftir leikinn en hún sagði ÍR-liðið hafa bætt sig mikið frá fyrri viðureign liðanna.
„Þetta var mjög erfiður leikur. Varnarmenn ÍR-inga voru mikið betri en þegar við mættum þeim á Akureyri. Þær voru mikið sterkari og gáfu á sér fá færi. Þær voru líka að spila mun fastar og voru kannski að spila of fast á ákveðnum tímapunktum.“
Mateja féll nokkrum sinnum við eftir viðskipti sín við varnarmenn ÍR sem voru fastir fyrir og það virtist pirra hana í nokkur skipti.
„Þetta pirraði mig aðeins í byrjun leiks en ég náði svo að einbeita mér að leiknum“, sagði Mateja Zver og bætti við að hún hefði verið ánægð með frammistöðu sína þó svo að hún hefði getað gert betur í einhver skipti.
Við spurðum hana að lokum um framhaldið hjá Þór/KA en liðið situr í 4.sæti deildarinnar og er fjórum stigum á eftir toppliðunum Val, Breiðablik og Stjörnunni.
„Við erum í góðu formi og hugsum um fyrstu þrjú til fjögur sætin. Það verður svo bara að koma í ljós hvernig þetta endar allt saman,“ sagði Mateja Zver að lokum.




