Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 07:00
Þórður Már Sigfússon
Heimild: ABC Nyheter 
Arnór: Eiður mun aldrei spila í Noregi
Norski vefmiðllinn, ABC Nyheter, fjallaði í gær um stöðu Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Barcelona og var karl faðir hans og umboðsmaður, Arnór Guðjohnsen, m.a. spurður út í framtíð sonarins og hvort Eiður gæti hugsað sér að spila í Noregi áður en ferlinum lýkur.

Eiður hefur verið orðaður við nánast helming liða í ensku úrvalsdeildinni undanfarið en Arnór segir þær vangaveltur ekki byggðar á sterkum grunni.

,,Það þjónar engum tilgangi að ræða þetta þar sem ekkert haldbært hefur borist inn á borð til okkar,” sagði Arnór og bætti við að Eiði líði mjög vel á Spáni.

Litlu munaði að Eiður gengi í raðir norska úrvalsdeildarliðsins Rosenborg undir lok síðasta áratugs stuttu áður en hann samdi við Bolton.

Arnór segir engar hins vegar líkur á því að Eiður muni spila í Noregi áður en hann lýkur ferlinum.

,,Eiður mun spila nokkur ár til viðbótar í útlöndum áður en hann snýr aftur til Íslands en Noregur er ekki eitt þeirra landa sem ég á við þegar ég tala um útlönd,” sagði Arnór og bætti við: ,,Hann mun aldrei spila með norsku liði.”

Slapp
banner
banner