GRV - Fylkir
0-1 Danka Podovac ('20)
0-2 Anna Sigurðardóttir ('45)
0-3 Anna Sigurðardóttir ('51)
0-4 Anna Sigurðardóttir ('60)
1-4 Linda Ósk Kjartansdóttir ('90)
Fylkir náði í þrjú stig á Grindavíkurvöll í kvöld með góðum 1-4 sigri á heimastúlkum í GRV. Anna Sigurðardóttir skoraði þrennu fyrir Fylki í leiknum.
0-1 Danka Podovac ('20)
0-2 Anna Sigurðardóttir ('45)
0-3 Anna Sigurðardóttir ('51)
0-4 Anna Sigurðardóttir ('60)
1-4 Linda Ósk Kjartansdóttir ('90)
Fylkir náði í þrjú stig á Grindavíkurvöll í kvöld með góðum 1-4 sigri á heimastúlkum í GRV. Anna Sigurðardóttir skoraði þrennu fyrir Fylki í leiknum.
Fylkir byrjaði leikinn af miklum krafti og þær fengu tvö dauðafæri strax í byrjun leiksins en skutu framhjá markinu. Svo virtist sem leikmenn GRV væru ekki tilbúnir til að byrja leikinn þennan fyrsta hluta.
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari GRV prófaði smá breytingar á liði sínu því Norður Írinn Sarah McFadden sem hefur leikið í vörn liðsins til þessa og staðið sig mjög vel var nú komin í sóknina og við það fór Alma Rut Garðarsdóttir í vörnina.
Fylkir hélt þó áfram að sækja og okmust yfir eftir 20 mínútna leik. Anna Björg Björnsdóttir kom þá upp hægra megin og sendi botlann fyrir markið þar sem Danka Podovac kom og skallaði boltann í netið.
Undir lok fyrri hálfleiksins bætti Fylkir svo við öðru marki við en það gerði Anna Sigurðardóttir eftir að hafa fengið stungusendingu innfyrir vörn GRV og afgreiddi boltann svo í netið.
Í byrjun síðari hálfleiksins skoraði Anna svo annað mark með góðum skalla eftir fyrirgjöf og hún fullkomnaði svo þrennuna eftir klukkutíma leik er hún setti boltann í markið eftir fyrirgjöf.
GRV fékk svo sárabætur í lokin þegar Linda Ósk Kjartansdóttir minnkaði muninn. GRV hafði þá fengið hornspyrnu og Sarah McFadden hitti ekki boltann sem fór til Lindu Óskar sem setti hann í markið.
Anna Sigurðardóttir átti mjög góðan leik í liði Fylkis í kvöld og fullkomnaði það með því að skora þrjú mörk. Auk hennar áttu Danka Podovac, Anna Björg Björnsdóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir góðan dag. Laufey Björnsdóttir hélt mjög vel á miðjunni og ungur bakvörður, Hanna María Jóhannsdóttir hefur verið að koma vel inn í liðið og átti góðan dag. Hjá GRV stóð Thelma Þorvaldsdóttir fyrirliði liðsins sig vel og McFadden átti góðan leik að venju.






