Heimild: Sporting Life
Alessandro Luccio umboðsmaður Mirko Vucinic, leikmanns Roma segir að Vucinic vilji vera áfram í herbúðum félagsins.
Vucinic hefur verið orðaður við för frá félaginu til Englands. Lið á borð við Manchester United og Tottenham voru sögð hafa áhuga.
,,Það eru lið sem hafa áhuga, sérstaklega í ensku úrvalsdeildinni en ekkert lið hefur talað formlega við mig," sagði Lucci.
,,Mirko er mjög ánægður með að vera áfram hjá Roma."
,,Hann framlengdi samning sinn nýlega. Hann er ánægður hjá félaginu og félagið er ánægt með hann. Það er engin ástæða til þess að halda að Vucinic sé á leið frá Roma."


