Undarlegt atvik átti sér stað á leik ÍR og Stjörnunnar í annarri umferð VISA-bikars kvenna um helgina þegar ÍR-ingar gleymdu að setja Liliana Maria Pereira Martins, spilandi þjálfara liðsins á leikskýrslu.
Þetta uppgötvaðist í þann mund þegar liðin voru að fara að ganga út á völl en þá var orðið of seint að breyta leikskýrslunni og ljóst að Martins fengi ekki að taka þátt í leiknum.
ÍR-ingar tóku þá upp á því að staðsetja hana á milli varamannabekkjanna í appelsínugulu vesti og segja hana vera starfsmann leiksins.
Þar reyndi hún að gefa skipanir svo Ólafur Kjartansson dómari vísaði henni í burtu.
Eitthvað fór það reyndar í taugarnar á þeim sem stýrði ÍR-liðinu á bekknum og hann lét skapið bitna á ljósmyndara Fótbolta.net og vísaði honum í burtu með þeim skilaboðum sem hann þyrfti næði.
Martins fór hinsvegar yfir völlinn og stýrði liðinu svo allan leikinn hinum megin við grindverkið á ÍR-velli en fór í hálfleik til leikmanna sinna og gaf sínar skipanir eins og meðfylgjandi myndir sýna.




