Heimild: BBC
Bolton Wanderers hefur fengið miðjumanninn Sean Davis frítt frá Portsmouth.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við Bolton eftir að samningur hans við Portsmouth rann út í sumar.
Bolton reyndi að kaupa Davis í janúar en þá vildi Portsmouth ekki selja þennan fyrrum leikmann Fulham.
,,Sean lék 40 leiki á síðustu leiktíð og mun styrkja miðjuna hjá okkur," sagði Gary Megson stjóri Bolton.
,,Við vildum fá hann á Reebok leikvanginn í janúar en 3,5 milljóna punda tilboði okkar var hafnað af Portsmouth."



