Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu frá Englandi en það er BBC sem tekur pakkann saman.
Viðræður Inter við Chelsea um kaup á Ricardo Carvalho og Deco hafa silgt í strand. Chelsea vill fá tólf milljónir punda fyrir leikmennina en Inter vill einungis borga sex milljónir. (La Gazzetta Dello Sport)
Barcelona mun snúa sér að Cesc Fabregas miðjumanni Arsenal eftir að félagið frétti að Franck Ribery, leikmaður FC Bayern, vilji frekar fara til Real Madrid. (Daily Star)
Óvíst er hvort að Samuel Eto´o fari til Manchester City þar sem hann vill fá hluta af kaupverðinu frá Barcelona. (Daily Mirror)
Sam Allardyce, stjóri Blackburn, ætlar að reyna að fá Andy van der Meyde en samningur hans við Everton var að renna út. (The Sun)
Real Madrid ætlar að bíða eftir að fá Xabi Alonso frá Liverpool þar til síðar í júlí en þá fellur úr gildi klásúla sem segir að Real Sociedad, fyrrum félag Xabi, fái hluta af kaupverðinu. (Daily Mail)
Arsenal er búið að gefast upp á að reyna að fá Felipe Melo frá Fiorentina en félagið ætlar núna að berjast við Tottenham um Loik Cana miðjumann Marseille. (Daily Express)
Manchester United gæti reynt að fá Ander-Pierre Gignac framherja Toulouse en hann kostar ellefu milljónir punda. (The Star)
Michael Owen er með tilboð frá Aston Villa og Everton en samningur hans við Newcastle klárast í dag. (The Independent)
Brasilíski framherjinn Jo mun fara aftur á láni til Everton þar sem að Mark Hughes, stjóri Manchester City, getur ekki lofað honum föstu sæti í aðalliðinu. (The Sun)
Aston Villa er að skoða Philippe Senderos, varnarmann Arsenal, sem og Sylvain Distin hjá Portsmouth og David Wheater hjá Middlesbrough. (Daily Mail)
Tottenham er á eftir Eldin Jakupovic markverði Lokomotiv Moskvu. (The Times)
Roy Keane, stjóri Ipswich, ætlar að fá Lee Martin frá fyrrum félagi sínu Manchester United. (Daily Mirror)
Benni McCarthy gæti yfirgefið Blackburn og gengið í raðir Celta Vigo á Spáni. McCarthy hefur áhyggjur af því að fá ekki nógu mörg tækifæri hjá Blackburn þannig að hann geti komist í landslið Suður-Afríku fyrir HM á næsta ári. (Daily Mirror)
Nemanja Vidic, varnarmaður Manchester United, hefur sagt að AC Milan, Barcelona og Real Madrid hafi sýnt sér áhuga en þrátt fyrir að eiginkona hans vilji fara þá ætlar Vidic að vera áfram hjá United. (The Sun)
Paul Ince gæti tekið aftur við sem knattspyrnustjóri MK Dons eftir að Roberto Di Matteo hætti til að taka við WBA. (Daily Mirror)
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur sagt njósnurum sínum að fylgjast vel með Sylvan Ebanks-Blake, framherja Wolves, þegar að keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst. (The Sun)
