Heimild: Damfotboll.com
Frá því er greint á vefnum Damfotboll í dag að landsliðskonurnar Edda Garðardóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir séu á förum frá sænska úrvalsdeildarfélaginu KIF Örebro um næstu mánaðarmót.
Heimaleikurinn gegn Stattena 26. júlí verður því kveðjuleikur þeirra með liðinu en samningur þeirra rennur út um mánaðarmótin.
,,Það er vegna skattareglna að við höfum ekki efni á að halda þeim út tímabilið," sagði Thomas Rasmusson framkvæmdastjóri félagsins á vefnum Damfotboll.com.
Þetta gildir aðeins um Eddu og Ólínu en samningur annarra erlendra leikmanna við félagið gildir að minnsta kosti út tímabilið.


