Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 11:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Fimm leikmenn yfirgefa Portsmouth
Óvissa er um framtíð Sol Campbell.
Óvissa er um framtíð Sol Campbell.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Fimm leikmenn hafa verið látnir fara frá Portsmouth en þeir urðu allir samningslausir um mánaðarmótin.

Um er að ræða Noe Pamarot, Lauren, Glen Little, Djimi Traore og Jerome Thomas.

Lauren og Traore sem léku á sínum tíma með Arsenal og Liverpool komu ekki við sögu á síðustu leiktíð en Pamarot lék 22 leiki.

Kanu er með tilboð um nýjan eins árs samning frá Portsmouth og þá er varnarmaðurinn Sol Campbell einnig samningslaus en hann gæti byrjað viðræður á næstunni.

,,Við munum skoða það í næstu viku hvort það verða frekari viðræður (við Campbell)," sagði Peter Storrie formaður Portsmouth.
Slapp
banner
banner
banner