Heimild: BBC
Sebastian Leto, kantmaður Liverpool, hefur gengið í raðir Panathinaikos.
Þessi 22 ára gamli Argentínumaður var í láni hjá Olympiakos á síðustu leiktíð þar sem hann fékk ekki atvinnuleyfi á Englandi til að leika með Liverpool.
Leto kom til Liverpool frá Lanus á tvær milljónir punda í ágúst 2007 en hann lék sinn fyrsta leik með enska félaginu gegn Toulouse síðar í þeim mánuði.
Leto lék síðan þrjá aðra leiki með Liverpool en gekk illa að festa sig í sessi og nú hefur hann gengið í raðir Panathinaikos.




