Heimild: Sky
Wolves hefur fengið Andrew Surman, miðjumann Southampton, til liðs við sig.
Mick McCarthy stjóri Wolves er að styrkja leikmannahópinn fyrir ensku úrvalsdeildina og hann hefur núna krækt í hinn 22 ára gamla Surman.
,,Þetta eru frábær skipti fyrir mig og ég er mjög spenntur," sagði Surman en hann gerði þriggja ára samning við Wolves með möguleika á framlengingu um eitt ár.
,,Að koma til félags í úrvalsdeildinni sem er eins stórt og Wolves er frábært."
Surman er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Wolves í sumar en liðið sigraði í ensku Championship deildinni á síðustu leiktíð.



