Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 11:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Real Madrid nær samkomulagi um kaup á Benzema
Real Madrid hefur náð samkomulagi við Lyon um kaup á framherjanum Karim Benzema en þetta segir umboðsmaður leikmannsins.

Benzema hefur verið orðaður við bæði Real Madrid og Manchester United í sumar en nú lítur út fyrir að hann sé á leið til fyrrnefnda félagsins á 35 milljónir evra.

Karim Djaziri, umboðsmaður Benzema, sagði í útvarpsviðtali í dag að félögin hafi komist að samkomulagi en leikmaðurinn eigi eftir að semja við Real Madrid og fara í læknisskoðun.

Benzema, sem er 21 árs, hefur leikið með aðalliði Lyon frá árinu 2004 en hann hefur skorað 66 mörk í 149 leikjum með liðinu. .

Real Madrid hefur í sumar fengið Cristiano Ronaldo og Kaka til liðs við sig sem og varnarmanninn Raul Albiol frá Valencia.
Slapp
banner
banner
banner