Nýr miðvikudagur er genginn í garð sem og nýr mánuður. Líkt og á hverjum einasta miðvikudegi birtast tvífarar hér inn á fótbolta.net.
Dagurinn í dag hófst með stórtíðindum en sögunni endalausu um Cristiano Ronaldo og Real Madrid, var að ljúka með félagskiptum kappans sem gerir hann að langdýrasta knattspyrnumanni í heiminum.
Í tilefni þess fundum við tvífara Cristiano Ronaldo en sá heitir Astro Boy, eða Geimstrákurinn, og er teiknimyndahetja frá Japan. Nokkuð ljóst er að þeir félagar hafa að minnsta kosti sama hárgreiðslumann.
Ef þú veist um tvífarara, endilega sendu línu á [email protected] og mundu að minnsta kosti annar hvor tvífarinn verður að vera knattspyrnutengdur.
Smellið hér til að sjá eldri tvífara

