Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 13:21
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Lyon ekki búið að samþykkja tilboð í Benzema
Franska félagið Lyon hefur staðfest að tilboð hafi borist í framherjann Karim Benzema en hins vegar er ekki rétt að það tilboð hafi verið samþykkt.

Umboðsmaður Benzema sagði í morgun að Lyon hefði samþykkt 35 milljóna punda tilboð frá Real Madrid í leikmanninn en franska félagið segir það ekki vera rétt.

,,Við höfum fengið tilboð sem er hærra en sú upphæð sem hefur verið nefnd en ekkert segir að þetta tilboð komi frá Real," sagði Olivier Blanc yfirmaður hjá Lyon við L'Equipe.

,,Það er ekki komið samkomulag við neinn," bætti Blanc við að lokum.

Benzema, sem er 21 árs, hefur leikið með aðalliði Lyon frá árinu 2004 en hann hefur skorað 66 mörk í 149 leikjum með liðinu.
Slapp
banner