Ejub Purisevic tekur tímabundið við
Kristni Guðbrandssyni þjálfara Víkings frá Ólafsvík hefur verið sagt upp störfum og mun Ejub Purisevic taka tímabundið við liðinu.
Víkingar byrjuðu sumarið af krafti og voru á toppi fyrstu deildarinnar eftir tvær umferðir en síðan hefur hallað undan fæti og eftir 3-0 tap gegn KA um síðustu helgi situr liðið í botnsæti deildarinnar með sex stig.
Kristinn tók við Víkingi síðastliðið haust eftir að Ejub Purisevic hætti eftir sex ára starf hjá félaginu.
Ejub kom Víkingi úr þriðju deild og upp í þá fyrstu á sínum tíma en hann mun núna taka aftur við liðinu tímabundið og stýra Víkingi í næsta leik liðsins gegn Leikni R. annað kvöld.
Kristinn Guðbrandsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Víking Ó frá og með deginum í dag, eftir að hafa stýrt liðinu frá 1. nóvember 2008.
Þetta var ákvörðun stjórnar meistaraflokks knattspyrnudeildar Víkings Ó í kjölfarið á slæmu gengi liðsins í 1. deildinni í sumar. Kristinn var sjálfur tilbúinn til að halda áfram störfum en tók þessari niðurstöðu af fagmennsku.
Í sumar hefur liðinu ekki gengið nógu vel eftir tvo sigurleiki í fyrstu tveimur umferðunum. Það var mat stjórnar meistaraflokks Víkings Ó að nauðsynlegt væri að breyta til og freista þess þar með að snúa gengi liðsins við þegar enn er eftir meira en helmingur af Íslandsmótinu. Þetta var erfið ákvörðun en nú mun stjórnin einbeita sér að því að finna eftirmann Kristins eins fljótt og auðið er. Ejub Purisevic hefur samþykkt að taka tímabundið við þjálfun liðsins þangað til nýr þjálfari finnst.
Stjórn meistaraflokks Víkings Ó þakkar Kristni góð störf fyrir félagið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Stjórn meistaraflokks Víkings Ó.


