Heimild: Sky
Mark Hughes, stjóri Manchester City, segist ennþá hafa áhuga á Samuel Eto´o og Carlos Tevez.
Báðir leikmennirnir hafa verið orðaðir við City en Eto´o gæti komið til félagsins á 25 milljónir punda frá Barcelona. Börsungar hafa boðið Eto´o nýjan samning en framtíð hans er ennþá í lausu lofti.
,,Við gerðum tilboð en það virðist vera eitthvað í gangi á milli félagsins og leikmannsins sem að við getum ekki verið hluti af," sagði Hughes.
,,Við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist. Þolinmæði er orð sem hefur verið nefnt og við gætum þurft á því að halda."
Carlos Tevez verður ekki áfram hjá Manchester United en hann hefur verið orðaður við City og Chelsea að undanförnu. Hughes er ennþá vongóður um að City geti klófest argentínska framherjann.
,,Ég er mikill aðdándi Carlos. Allir vita hvernig staðan er og við höfum áhuga á honum eins og öllum öðrum gæðaleikmönnum," sagði Hughes.




